Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 48
46 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
hafa mikil áhrif á sviði veirurannsókna, eins
og fram kom í viðtali við hann í Fréttablaðinu
nýlega. Þetta er líka að koma í ljós í allri þeirri
vinnu sem Íslensk erfðagreining hefur komið
að. Stuðningur Tækniþróunarsjóðs og skatta-
ívilnanir vegna þróunarkostnaðar hafa komið
sér vel fyrir Stjörnu-Odda.
3Z
3Z (3z.is) sprettur upp úr rannsóknar stofu í
Háskólanum í Reykjavík þar sem gerðar voru
svefnrannsóknir. Notaðir voru fiskar í staðinn
fyrir rottur eða mýs og í ferlinu voru smíðuð
ýmis tæki, þróaður hugbúnaður og búnir
til ferlar til að mæla mjög stóra hópa lítilla
zebrafiska í einu. Þá vaknaði sú hugmynd
hvort ekki væri hægt að nota þessa
kraftmiklu ferla í skipulagða lyfjaleit.
Karl Ægir Karlsson, frumkvöðull og stofnandi
nýsköpunarfyrirtækisins 3Z, hefur lengi
unnið að þessu verkefni en svo virðist sem nú
séu tímamót í sögu 3Z, sem hefur undanfarið
sótt fram í markaðssetningu og fengið góð
viðbrögð lyfjafyrirtækja.
Þegar hafa verið þróuð sjúkdómalíkön í fiski
sem líkja eftir Parkinson, MND, flogaveiki og
svefntruflunum, og verið er að þróa fleiri
sjúkdómamódel. Margir kostir eru við að nota
fiska við þessar rannsóknir. Unnið er mjög
þverfaglega og er mikilvægt að hafa sér-
fræðinga á mörgum sviðum. Vélaverk fræðingar,
forritarar, erfða fræðingar, tauga vísindamenn
og sérfræðingar í markaðsmálum.
Fyrstu árin upp úr 2010 var félagið ekki með
neina viðskiptavini heldur vann eingöngu
að því að gera prófanir og safna gögnum.
Árin 2015-2017 voru viðskiptavinir orðnir
fjórir til fimm, en 2017 var byrjað að vinna
fyrir japanskt lyfjafyrirtæki við rannsóknir á
lyfjum við MND og það er stærsta verkefni
fyrirtækisins núna.
Fyrirtækið hefði aldrei komist á koppinn
ef ekki hefði verið fyrir góðan stuðning
Háskólans í Reykjavík, Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins, Tækniþróunarsjóðs og þeirra
einkafjárfesta sem komu inn með þekkingu á
ólíkum sviðum.
Kind.app
Kind.app (kind.app) er tiltölulega einfaldur
hugbúnaður sem þróaður var í Svíþjóð og er
notaður af sjúklingum sem samskiptatæki
við lækna og með fjölmörgum gagnlegum
upplýsingum fyrir sjúklinga með tiltekinn
sjúkdóm. Kind.app hefur verið notað fyrir
sjúklinga sem hafa farið í gegnum líffæra-
skipti, krabbameinssjúklinga, ófrískar konur
og ýmsa sem þurfa að fara í gegnum ákveðið
prógramm. Sjúklingurinn fær þá reglulega
tilkynningar um ýmislegt eins og hvenær á
að koma í skoðun, upplýsingar um mataræði,
eyðublöð sem þarf að nota, myndir og mynd-
bönd, örugg sjúkraskrárgögn o.fl.
Framkvæmdastjóri og einn eigenda
fyrirtækisins, Charlotta Tönsgård, kom til
Íslands á síðasta ári í tengslum við málþing
landssamtakanna „Spítalinn okkar“ og kynnti
appið og vakti það talsverða athygli. Crow-
berry Capital hefur fjárfest í fyrirtækinu, sem
er í sókn inn á Evrópumarkað.
Sidekickhealth
Heilbrigðisfyrirtækið Sidekickhealth hefur
í samstarfi við CCP og fleiri aðila þróað nýtt
kerfi sem meðal annars gefur COVID-19
sjúklingum færi á að senda upplýsingar um
líðan sína til yfirvalda. Kerfið verður tekið í
notkun í þrepum hjá heilbrigðisyfirvöldum
og gæti skipt miklu máli við að létta álagi af
heilbrigðiskerfinu.
Dagsdaglega þróar Sidekickhealth stafrænar
heilbrigðismeðferðir, þar sem tækninni er
beitt til þess að bæta meðferð sjúklinga
með ýmsa langvinna sjúkdóma. Á mettíma
þróaði Sidekick, í samvinnu við fjölmarga
aðila, kerfi sem gefur COVID-19 sjúklingum
færi á að senda upplýsingar um líðan sína
í gegnum smáforrit, sem og vefgátt sem
leyfir heilbrigðisstarfsfólki að meta hvernig
sjúkdómurinn er að þróast. Einnig býður
kerfið upp á bein samskipti milli sjúklings og
heilbrigðisstarfsfólks. Greint var frá þessu í
Fréttablaðinu 3. apríl síðastliðinn.2