Þjóðmál - 01.06.2020, Síða 55
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 53
Eftir því sem seig á ógæfu hliðina í stríðsrekstri
Þjóðverja varð dvölin þar æ erfiðari. Ottó
sóttist eftir því að fá að flytjast til Danmerkur
en þeirri beiðni var synjað. Hann ákvað því
að strjúka sumarið 1944 og fór huldu höfði í
Kaupmanna höfn um nokkurt skeið.
Danirnir tóku hin þýsku prófskírteini Ottós
ekki gild og hann varð því að láta sér lynda
að vinna næstu tvö árin sem „framhaldsnemi“
í Danmörku á lúsarlaunum en honum tókst
að drýgja tekjurnar með því að kaupa notaðar
skrifstofuvélar sem hann gerði upp og seldi.
Skýrsluvélarnar koma til sögunnar
Heimkominn frá námi árið 1946 hóf Ottó
þegar að vinna í iðngrein sinni og stofnaði
Skrifstofuvélar hf. með Jens Sigurðssyni, en
samstarf þeirra varði þó stutt og Ottó keypti
brátt hlut Jens.
Til tíðinda dró í lífi Ottós árið 1948 þegar
hingað til lands kom danskur maður að nafni
Viggo Troels-Smith sem sérlegur sendimaður
frá hinu alþjóðlega stórfyrirtæki International
Business Machines, sem var skammstafað
IBM. Viggo var á höttunum eftir umboðs-
manni fyrir IBM á Íslandi og leitaði til Ottós,
sem sló til og hélt utan til náms í viðgerðum
á gagnavinnsluvélum IBM. Námskeiðið var
haldið í Stokkhólmi og tók átta mánuði.
Námið var strembið, en allt fór það fram á
ensku, sem Ottó varð að læra samhliða. Frá
Stokkhólmi var haldið til Kaupmannahafnar,
þar sem Ottó lærði á gataspjaldavélar.
Árið 1950 komu fyrstu skýrsluvélarnar til
landsins, en tildrögin voru þau að Sameinuðu
þjóðirnar ákváðu að nota Ísland til tölfræði-
legra rannsókna á berklaveiki og voru
skýrslu vélar keyptar með þetta verkefni í
huga. Um þær mundir var berklaveikin þó í
mikilli rénun og hætt var við rannsóknina.
Klukkur voru Ottó hugstæðar, enda sonur úrsmíðameistara. IBM framleiddi klukkur, klukkukerfi og stimpilklukkur. Fljótlega
eftir að hann gerðist umboðsmaður IBM tók hann klukkuna í turni Sjómannaskólans í fóstur, en hún hafði fram að því
gengið skrykkjótt. Skrifstofuvélar seldu klukkur og klukkukerfi víða, meðal annars til skóla, en frægasta og stærsta IBM-
klukkan er vafalítið sú sem komið var fyrir á þaki Útvegsbankans við Lækjartorg. Á ljósmyndinni má sjá hvernig Útvegs-
bankaklukkan gnæfði yfir miðbæinn um 1960 (Ljósm. Ólafur G. Ársælsson).