Þjóðmál - 01.06.2020, Page 59
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 57
vélbúnað af IBM og hófu þá rekstur eigin
tölvu deilda. Við þessa iðju starfaði sérstök
stétt götunarstúlkna. Hlutverk þeirra var að
gera gögn lesanleg í vélum og þannig með-
færileg í gataspjaldavélum eða tölvum. Þetta
var erfitt starf í þröngu húsnæði við mikinn
hávaða frá vélum. Talsverður hiti þurrkaði
loftið og langar setur gátu leitt af sér ýmsa
kvilla. Ein fyrrverandi götunarstúlka, Margrét
Bárðardóttir, minnist þess að Ottó hafi verið
áhugasamur um að þær hefðu góða stóla
og bærilega loftræstingu og leituðu til
sjúkraþjálfara við kvillum þannig að þeim liði
eins vel við vinnuna og kostur var.16
Einstakur starfsandi
Starfsfólk Skrifstofuvéla og IBM ber Ottó
ákaflega vel söguna. Gefum Sigríði Óskars-
dóttur orðið, en hún starfaði sem einkaritari
Ottós: „Það var einstaklega þægilegt og gott
að vinna með Ottó hjá IBM á Íslandi. Hann
hlustaði vel á starfsfólk og gaf góð ráð og
hjálpaði ýmsum persónulega. Einstaklega
gjafmildur maður. Hann var mjög hlýlegur,
föðurlegur og góður maður. Mannvinur í
raun og hjálplegur.“17
Elías Davíðsson var fæddur í Palestínu en
settist hér að og hóf störf hjá Ottó skömmu
fyrir jólin 1962. Hann vann síðan hjá IBM á
Íslandi frá stofnun fram til ársins 1975. Hann
segir Ottó hafa lagt mikla áherslu á framhalds-
menntun starfsmanna sinna og sjálfur hafi
hann notið mjög góðs af námskeiðum
erlendis á vegum IBM. Elías lét af störfum
hjá IBM vegna ósættis með fyrirkomulag
hins alþjóðlega stórfyrirtækis og kom þar
ýmislegt til. Hann segir Ottó hafa breyst eftir
að hann varð forstjóri IBM á Íslandi og orðið
að fylgja fyrirmælum að utan. Grípum niður
í samtal við Elías: „Hann varð að framfylgja
ýmsum reglum sem honum voru ef til vill
ekki að skapi. Einu sinni sagði hann mér að
honum hefði verið skipað að kaupa betri bíl
(BMW) til að tryggja ímynd forstjóra IBM.“
Elías segir síðan: „Ef það er eitt atriði sem ég
tel marka meira en nokkuð annað þau ár sem
ég starfaði hjá IBM, þá er það persónuleiki
Ottós A. Michelsen. Ég tel hann til merkari
persóna sem ég hef mætt á lífsleiðinni. Af
honum geislaði óvenjuleg þjónustulund og
kærleikur til náungans. Hann var sannkristinn
maður. Hann leit aldrei niður á nokkurn mann
og taldi sig bera ábyrgð á velferð starfsmanna
sinna. Hann gerði sér grein fyrir takmörkunum
sínum og lét hæfileika starfsmanna njóta sín.“18
Sverrir Ólafsson, sem stýrði skýrsluvinnslunni
hjá IBM, segir Ottó hafa borið mikla umhyggju
fyrir starfsfólki sínu. Hann hafi átt gott með
að laða fram það besta í mönnum og starfs-
menn hans lagt sig sannarlega fram. Hann
hafi haft til að bera þýskan aga, en umfram
allt hafi Ottó verið heiðarlegur og vandvirkur.
„Einfaldlega mjög góður maður“.19
Hjá IBM var notast við afkastahvetjandi kerfi,
menn gátu notið kaupauka og var boðið
upp á veglegar utanlandsferðir ef tilteknum
árangri var náð. Þetta var algjör nýlunda hér
á landi. Fyrirtækinu vegnaði vel, veitti um eitt
hundrað manns vinnu þegar mest lét og var
einn hæsti skattgreiðandi í höfuðborginni.
Það var í samræmi við stefnu IBM að vera
hvarvetna „góður borgari“. Fyrirtækið skyldi
greiða skatta þar sem starfsemin átti sér
stað.20 Sverrir Ólafsson, sem stýrði skýrslu-
vinnslu IBM, orðar þetta svo: „Engar ívilnanir
fékk fyrirtækið til að hefja rekstur hérlendis
og kærði sig ekkert um þær. Reksturinn skyldi
vera á jafnræðisgrundvelli. Það er auðvelt að
ímynda sér að þetta var allt mjög í anda
Ottós A. Michelsen. Nú hafa stjórnmálamenn
og fjármálaséni nútímans snúið þessu öllu
á haus. Skattar erlendra stórfyrirtækja eru
greiddir þar sem þeir eru lægstir og arðurinn
fluttur óskattaður úr landi, lítið er gefið fyrir
að vera góður þjóðfélagsþegn; þykir í besta
falli svolítið hallærislegt og erlend fyrirtæki
fá hinar og þessar ívilnanir ef þau vilja vera
svo vinsamleg að hefja starfsemi hérlendis.
Jafnvel er fullveldi landsins hugsanlega falt
fyrir rétt verð.“21
IBM veitti ríkulega fé til menningar- og
menntamála og var „íslenskara“ en mörg
fyrirtæki ef svo má segja, þrátt fyrir að vera
útibú alþjóðlegs stórfyrirtækis.