Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 66
64 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
En það hvað skákreiknar eru miklu sterkari
en mannfólkið hefur því miður boðið upp á
freistingar. Ýmsir freistast til að hafa skák-
reikni nálægt sér þegar þeir tefla. Jafnvel er
hægt að biðja Nonna frænda að vera með
skákina í öðru tæki og koma upplýsingum á
framfæri.
Vandamálið eykst þegar verðlaun eru í boði.
Skákþjónar leggja mikla áherslu á að reyna
að stöðva þetta. Prófessorinn og alþjóðlegi
meistarinn Kenneth Regan hefur útbúið
algóritma sem eru býsna góðir við að grípa
svindl – hvort menn tefla óeðlilega líkt og
tölva. Chess.com hefur fjölda starfsmanna til
að reyna að koma í veg fyrir það. Þeir grípa
t.d. inn í ef menn tefla allt í einu of vel.
Vandamálið er þó að þótt menn þykist vita
með mikilli vissu er sönnunarbyrðin alltaf
þung. Netþjónar Chess.com hafa þá einnig
farið að útiloka menn frá þátttöku á líkum.
Á EM í netskák þurftu allir að skrá sig undir
fullu nafni og FIDE-kennitölu. Það dugði
því miður ekki til. Allt var morandi í svindli
– sérstaklega í neðstu flokkunum. Í úrslita-
keppnum var komin skylda um að vera
tengdur við Zoom. Það leysir ekki vandann
fullkomlega en gerir allt svindl erfiðara.
Það er auðvelt að ná þeim sem svindla allan
tímann en nánast ómögulegt að ná þeim sem
kannski fá ráðleggingu 1-2 sinnum í skák.
Hvað er til ráða? Í Þjóðakeppni FIDE var 360
gráðu myndavél. Að vera með slíkt á alla
keppendur á stórum mótum er væntanlega
óraunhæft.
Mögulegt er að hafa skákmiðstöðvar.
Segjum t.d. að keppendur á alþjóðlegu móti
gætu tekið þátt og til staðar væru nokkrar
miðstöðvar. Til dæmis í Reykjavík, London,
New York, París og Moskvu. Í stað þess að
200 erlendir keppendur ferðuðust alla leiðina
til Reykjavíkur til að taka þátt í Reykjavíkur-
skákmótinu gætu þeir teflt frá miðstöð í
heimalandi sínu. Þar þyrfti reyndar að hafa
skákstjóra yfir þeim.
Það er nú samt þannig að flestum finnst
skemmtilegra að horfa framan í and-
stæðinginn! En frábært að geta teflt heima
hjá sér á netinu í tölvunni eða snjalltækinu!
Kraftaverk netskákarinnar
Þótt hér að ofan hafi verið einblínt á gallana
verður að benda á það jákvæða. Netskákin
reyndist frábærlega í heimsfaraldrinum.
Skákþjálfarar gerðu sumir hverjir kröfur til
nemenda sinna á meðan þetta ástand varði
um að þeir tefldu a.m.k. ákveðinn fjölda net-
skáka á dag/viku.
Það var t.d. ljóst að þeir sem sinntu skákinni
vel í kófinu komu vel undan þegar skákstarf
hófst aftur í raunheimum í maí.
Æfingar unglingalandsliðsins (u25) og
kvenna landsliðsins hafa farið fram á netinu
og Zoom verið notað. Það gekk framúr-
skarandi vel og á því verður framhald.
Vegur netskákar á eftir að aukast. Ólympíu-
skákmótið féll niður í ár en FIDE stendur fyrir
ólympíumóti á netinu í ágúst. Það verður
áhugaverð tilraun. Þar tefla blönduð lið,
karlar, konur og unglingar af báðum kynjum.
EM ungmenna í netskák fer fram í september.
Þar geta skáksambönd sent allt að 24 fulltrúa.
Mótahald er að mjakast af stað í Evrópu.
A.m.k. 14 alþjóðleg skákmót eru komin á
dagskrá í sumar, sem er að sjálfsögðu mjög
lítið miðað við það sem er í hefðbundnu
árferði. Staðbundin mót verða þess í stað
algengari. Sum lönd gera kröfur um að teflt
sé með grímu.
Fram undan er Íslandsmótið í skák sem
fram fer í Garðabæ í ágúst. Og alþjóðlegt
minningarmót um Sigtrygg Sigtryggsson
glímukappa verður haldið í haust ef ástand
leyfir. Íslandsmót skákfélaga fer fram í
október. Hápunktur næsta skákvetrar verður
Evrópumót einstaklinga sem verður hluti af
Reykjavíkurskákmótshátíðinni í apríl 2021.
Svo verður slatti af netskák í góðu blandi.
Skemmtilegur skákvetur fram undan!
Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.