Þjóðmál - 01.06.2020, Qupperneq 84
82 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Á síðustu tímum eru sumir farnir að kalla alla
lífsbaráttu þjóðarinnar sjálfstæðisbaráttu
hennar. Um þetta væri eigi nema gott allt
að segja ef það væri gert til að efla skilning
þjóðarinnar á mikilvægi þessarar baráttu, en
í þess stað sýnist það beinlínis gert til þess
að villa þjóðinni sýn. Draga huga hennar frá
hinni eiginlegu sjálfstæðisbaráttu, fá hana til
að trúa að stjórnskipulegt sjálfstæði sé algert
aukaatriði sjálfstæðismálsins, heldur séu það
allt önnur málefni sem þar hafi mesta þýðingu.
En hvert er þá hið rétta eðli sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar?
Hún er hliðstæð baráttu ánauðugs manns
fyrir að fá fullt frelsi og mannréttindi. Sá sem í
ánauð er heldur lífi og limum þrátt fyrir ánauð
sína. Hann getur haft nóg að bíta og brenna.
Og vel má vera að honum líði allt eins vel eða
betur en sumum frjálsum mönnum. Þrátt fyrir
það unir enginn, sem einhver manndómur er
í blóð borinn, því að vera í ánauð. Hann finnur
og veit að ánauðin skerðir manngildi hans og
er ósamboðin hverjum mennskum manni.
Honum er og fullljóst að þótt vel sé séð fyrir
öllum efnahagslegum þörfum hans, þá eru þó
allar líkur til að hann beri meira úr býtum ef
Dr. Bjarni Benediktsson
Lýðveldi á Íslandi
Þann 10. júlí 2020 voru liðin 50 ár frá því að
dr. Bjarni Benediktsson, þá forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins, lést á
Þingvöllum ásamt eiginkonu sinni, Sigríði
Björnsdóttur, og dóttursyni þeirra, Benedikt
Vilmundarsyni. Í minningu Bjarna er hér birt
á prenti ræða hans frá landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í júní 1943. Ræðuna flutti Bjarni um
sjálfstæðismálið sem þá var í brennidepli
en ári síðar varð Ísland frjáls og fullvalda
þjóð. Danmörk hafði þá verið hernumin af
Þjóðverjum og Ísland af Bretum. Á þessum
tíma var mikið rætt um að hvort ekki ætti
að efna uppsagnarákvæði sambandslaga-
sáttmálans við Dani og stofna lýðveldi á
Íslandi. Bjarni var eindregið á þeirri skoðun
og flutti fyrir því góð rök. Vert er að hafa í
huga að Bjarni var aðeins 35 ára gamall þegar hann flutti ræðuna.
Tæpu hálfu ári eftir andlát Bjarna, í desember 1970, var ræðan gefin út í sérstöku riti á vegum
Almenna bókafélagsins með formála Baldvins Tryggvasonar, nánum samstarfsmanni Bjarna.
Í formálsorðum sínum segir Baldvin að ræðan, sem nefnd hefur verið Lýðveldi á Íslandi, hafi
verið flutt á örlagaríku lokaskeiði íslenskrar sjálfstæðisbaráttu en um leið „skilmerkileg
heimild um dr. Bjarna Benediktsson sjálfan, bæði sem mann og þjóðarleiðtoga.“
Sjálfstæðisbaráttan