Þjóðmál - 01.06.2020, Qupperneq 86
84 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
að halda uppi sjálfstæðu ríki í jafnerfiðu landi
sem Íslandi. Menn eru tregir að trúa krafta-
verkum nú á dögum og hafa því löngum látið
sér fátt um finnast tilraunir okkar til að öðlast
fullt frelsi.
Hitt hefði mátt ætla að Íslendingar hefðu ekki
þurft að eiga í innbyrðis baráttu um hvort þeir
ættu að heimta fullt frelsi og sjálfstæði sér til
handa. Svo hefur samt verið. Aðal örðug-
leikinn hefur einmitt verið sá, að sameina
þjóðina sjálfa um frelsis- og réttarkröfur sínar.
Þegar það hefur tekist, hefur sigranna sjaldan
verið langt að bíða. Einmitt vegna þess að
tálmananna hefur eigi fyrst og fremst verið
að leita í óvild heldur áhuga- og skilningsleysi
umheimsins á okkar högum.
Hafa þá verið til Íslendingar sem eigi vildu
algert stjórnskipunarlegt frelsi þjóðar sinnar?
Vonandi ekki. En hinir hafa stundum verið allt
of margir sem töldu þjóðina frekar hafa þörf á
einhverju öðru en þessu. Sögðu, að fyrst bæri
að tryggja efnahaginn eða þjóðernið sjálft,
eða eitthvað enn annað sem þeim þá sýndist
vera á glötunarinnar barmi. Þessir menn
hafa aldrei sagst vera á móti stjórnskipulegu
sjálfstæði þjóðarinnar. Síður en svo. Þeir hafa
einungis eigi viljað heimta það í dag, heldur
draga það til morgundagsins. Við þá á þýski
málshátturinn: Morgen, Morgen, nur nicht
heute, sagen alle faulen Leute. Á morgun, á
morgun, bara ekki í dag, er orðtak letingjans.
Í allri sjálfstæðisbaráttunni hefur þessi sónn
sí og æ kveðið við, hvenær sem ráðgert var
að stíga spor, stór eða smá, fram á við. Þessir
menn hafa ekki viljað illa, en illt verk hafa þeir
engu að síður unnið. Þeir gerðu sér ekki grein
fyrir, og hafa enn ekki í dag gert sér grein fyrir,
að frumskilyrði þess að allt annað gott fái
dafnað og náð fullum þroska með þjóðinni, er
að hún njóti fulls frelsis og sjálfstæðis.
Hugarletin og vantrúin hafa þó smám saman
orðið að þoka úr seti.
Í síðustu heimsstyrjöld og á áratugunum þar á
eftir lærðu allir forráðamenn þjóðarinnar að
stjórnskipulegt sjálfstæði var eitt af lífs-
skilyrðum þjóðarinnar og að hún varð þess
vegna að heimta það í sínar hendur svo fljótt
sem nokkur kostur var á. Þeim duldist þó ekki
að enn var gamla vantrúin lifandi í sumum
hlutum þjóðarlíkamans og viðbúið var að
hún sýkti frá sér ef glöggar gætur væru eigi á
hafðar. Eins vildu þeir í tæka tíð aðvara hina
fornu yfirráðaþjóð og aðra, sem þessi mál létu
sig skipta, um að Íslendingar væru einráðnir í
því að taka sér algert stjórnskipulegt frelsi, svo
fljótt sem verða mætti.
Af þessum orsökum spurði Sigurður Eggerz
að því á Alþingi 1928, hvort ríkisstjórnin vildi
„vinna að því að sambandslagasamningnum
verði sagt upp eins fljótt og lög standa til“. Og
af þessum ástæðum svaraði ríkisstjórnin og
allir þingflokkar því með öllu afdráttarlaust að
það sé „alveg sjálfsagt mál“ að svo verði gert.
Tæpum áratug síðar, eða 1937, tók Alþingi
málið til enn frekara öryggis upp að nýju og
ályktaði í einu hljóði um undirbúning þess „er
Íslendingar neyta uppsagnarákvæða sam-
bandslaganna og taka alla meðferð málefna
sinna í eigin hendur“. Í umræðum á Alþingi þá
heyrðist eigi fremur en 1928 nein úrtölurödd.
Gleggst og greinilegast kvað formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Ólafur Thors, að orði, er hann
sagði það kröfu flokks síns að uppsagnar ákvæði
sambandslaganna væri „hagnýtt þegar í stað
er lög leyfa, og taki þá Íslendingar í sínar hendur
alla stjórn allra sinna mála og séu landsins
gæði hagnýtt landsins börnum einum til fram-
dráttar“. Enda telur hann vilja Íslendinga allra
vera þann að segja upp sambandslögunum
og „gera enga samninga í staðinn“, heldur fella
samningana með öllu úr gildi.
Áður en Íslendingar gætu neytt uppsagnar-
ákvæða sambandslaganna tóku atburðirnir
sjálfir til máls og knúðu þá til enn skjótari
aðgerða en ætlaðar höfðu verið.
Aðfaranótt 9. apríl 1940 var Danmörk her-
numin af Þjóðverjum. Konungi og danska
ríkinu varð þar með ómögulegt að gegna
þeim skyldum né neyta þess réttar sem þeim
er fenginn í sambandslögunum og íslensku
stjórnarskránni. Alþingi neyddist því þegar
næstu nótt, 10. apríl, til að taka við handhöfn
konungsvalds og meðferð utanríkismála og
landhelgisgæslu inn í landið að svo stöddu.