Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Blaðsíða 73
Útlagi borgaralegs þjóðfélags
Hrísey, 22 ára; vélstjórar voru Eðvald Valdórs-
son, Vestmannaeyjum, 30 ára, og Aðalsteinn
Jónsson frá Hrísey, 44 ára. Kokkur var Oli
Guðbjartur Lárus Friðriksson frá Látrum í
Aðalvík, 28 ára, og háseti Páll Pálmason frá
Akureyri, 19 ára. Mb. Sæborg var stálskip
smíðað í Noregi 1902. Eigendur voru feðg-
amir Jörundur Jörundsson og Guðmundur
Jörundsson, útgerðarmenn í Hrísey (skipið var
skráð þar).9 Yngsti skipsverjinn, Páll Pálma-
son, var þama í sínu fyrsta skipsplássi. Bjarni
Gestsson man, þegar hann kom að kveðja afa
Bjarna, en þeir Bjarni
og Páll voru þremenn-
ingar. Bjami þekkti vel
systkini Páls, Valtý og
Laufeyju.10
Áslaugur Jóhannes-
son í Hrísey segir,
að Sæborg hafi verið
ágætur norskur línu-
veiðari, sem sást oft í
höfninni í Hrísey, þegar
hann var strákur. Aðal-
steinn Jónsson vélstjóri,
Alli, bjó á Hreinsvöllum
í Hrísey, það hús hafði
hann byggt sér. Hinrik
Schiöth var kallaður
Bassi og átti heima í
Ásgarði þarna í Hrís-
eyjarþorpinu. Að sögn
Áslaugs var Bassi ljúfur
og hændust strákarnir
að honum. Sigurgeir
Júlíusson í Hrísey segir,
að Alli hafi séð um ljós-
vélamar fyrir allt þorpið.
Slökkt var á þeim kl. 12
á miðnætti, og þá varð
Alli að ganga heim í
myrkrinu. Hann fékk sér
því vekjaraklukku, sem
hringdi kl. 12 á mið-
Mb. SœborgEA 383. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Stein-
gríms Kristinssonar, Siglufirði.
nætti. Trekkjarinn snerist þá og vafði uppá
sig spotta, sem lokaði fyrir olíugjöfina og
drap á ljósavélinni.11
Sigurgeir segir, að
skipt hafi verið um vél
í Sæborgu á svipaðan
hátt og í lv. Andey. Sjó-
hæfnin í Andey breytt-
ist við það, hún gat ekki
tekið upp nótabátana/
snurpubátana eftir breyt-
inguna." Sæborg hafði
einnig verið yfirbyggð
fyrr á árinu 1942 og sem
sagt sett í hana Lister
díselvél, og var bátur-
inn nú sagður vera 73
tonn. Vélsmiðjan Oddi
á Akureyri annaðist
verkið, sem var unnið í
gamla slippnum sunnan
við Torfunesbryggju.
Skipt var um plötur
og bönd í skrokknum,
þar sem þurfa þótti,
en erfitt var um efni
á stríðsárunum, sagði
Þórður Björgúlfsson,
vélsmiður, sem var við
þetta verk. Díselvélin
var léttari, og þyngd
hennar lagðist öðruvísi
í skipið en gufuvélin
með sínum gufukatli
PállPálmason. 0g kolaboxum. En þeir
Hinrik Valdimar Schiöth.
Eðvald Valdórsson.
71