Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Blaðsíða 103
Seley við Reyðarfjörð
Verskálatóji nr. 9 í Hjallsbyggð. Ljósm. HG.
Sex minjar var að finna á Byggðarholti en á
svokölluðu Bóndavörðuholti er aðeins sýnileg
varðan stóra sem holtið er kennt við. Gróður
sem vex á minjunum og umhverfís þær var
að langmestu leyti skarfakál. Geir Hólm, sem
síðast kom í eyna 1989 þar til í okkar ferð,
segir að minjar þar hafi síðan látið mjög á
sjá. Ekki síst má um kenna lundabyggðinni í
eynni en tóftimar eru svo útgrafnar að erfítt
er að gera sér grein fyrir upprunalegum
veggjalögum og innra skipulagi tófta. Þetta
gerði það einnig erfítt að greina hvort eldri og
ógleggri minjar kynnu að leynast á svæðinu,
m.a. undir yfírborði.
Minjarnar í Seley em dæmigerðar f'yrir
fyrri tíðar sjósókn, útgerð og annesjabúskap
þar sem sjávarhlunnindi voru mikilvægur
þáttur í lífsviðurværi. Sökum þess hve
lundinn hefur grafíð út stóran hluta tóftanna
og umhverfi þeirra er óvíst hversu heillegar
þær mannvistarleifar em sem leynst geta undir
yfírborðinu. í skýrslunni eru skráðar minjar
sýndar með tölustöfum (sjá uppdrátt). I ljós
kemur að verskálarústir sem lægst standa
svo sem nr. 6 á Byggðarholti og nr. 7 og 8 í
Hjallsbyggð eru laskaðar vegna sjávargangs
þannig að hleðslur hafa raskast og að hluta
hmnið niður í tjömna.
Tóft nr. 7, um 50 m vestur af vitanum,
hefur verið tvískipt, alls um 16 m á lengd
og 7 m á breidd að utanmáli og hafa dyr á
báðum rýmum vitað til vesturs að ijörunni.
Þessi skáli mun hafa verið í eigu Hafranes-
bænda.31 Tvær verskálatóftir, nr. 9 og 10,
em ofan sjávarklappa nyrst á gróðurtorfunni
í Hjallsbyggð um 100 m norður af vitanum.
Önnur er tvískipt, 6x9 m að utanmáli, og inn-
gangar tveir. Þær eru á dálítilli upphækkun
og því kunna að leynast undir þeim eldri ver-
skálatóftir. Eins og sést af þessu hafa vistar-
verur manna í Seley verið misjafnar að gerð
á ólíkum tímum. Af stuðluðu grjóti er nóg í
eynni en þó misjafnlega aðgengilegt. Tóftir
annarra húsa, líklega margar eftir verbúðir (nr.
1,3, 11, 12, 13, 14) eru ógleggri, misjafnar
að stærð og margar illa útgrafnar eftir lunda.
31 Geir Hólm. Minnisblað 3. okt. 2011.
101