Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Síða 75
Útlagi borgaralegs þjóðfélags
Séðyflr Skála á Langanesi 1943. Hertrukkar á leið frá Camp Greely niður til Skálaþorpsins við ströndina. Ljósmynd birt með
leyfi Friðþórs Eydal.
og 4 vindstiga stinningsgola að suðvestan; kl.
9 um morguninn 15. nóv. var 1,2 °C frostþar
og 6 vindstig að norðvestan.15
Bátsins er ekki getið í lögregludagbók
Seyðisljarðar haustið 1942.16 Bók sýslu-
mannsembættisins á Seyðisfirði (Sjó- og
verzlunardómsbók) hefur ekki borizt Þjóð-
skjalasafni, og hún fmnst ekki á Seyðisfírði.
Ekkert er að finna um þetta mál í Sjó- og
verzlunardómsbók bæjarfógetaembættisins
á Akureyri fyrir árin 1942 og 1943, og engar
upplýsingar hafa fundizt um sjóréttarhöld
(sjópróf) þar eða á Seyðisfirði vegna þessa
skipstapa.
í Dómsbók sýslumannsins á Húsavík
hefur ekkert verið fært inn þessu málefni
viðvíkjandi né er nokkuð að fínna í bréfasafni
þessa sýslumannsembættis, en þar ætti helzt
að vera að vænta bréfaskrifta, þar eð brak úr
bátnum rak á land í Norður-Þingeyjarsýslu (í
Sköruvík, sjá síðar).17
Camp Greely
Haustið 1942 reistu Bandaríkjamenn ratsjár-
stöð á Skálum á Langanesi (Camp Greely).
Byggingarsveit frá hernum hafði starfað þar
síðan í október. Þann 13. nóvember héldu þeir
fyrstu úr byggingarsveitinni á brott. Sveitin
hafði þá reist 24 skála (bragga) og 12 metra
hátt ratsjármastur á Skálum. Þeir höfðu einnig
lagt veg og vatnsleiðslu í herbúðimar.
Alls mun 600 tonnum af efni og búnaði
hafa verið landað á Skálum þetta haust.
Ætlunin var, að þeir, sem eftir vom af bygg-
ingarsveitinni, skyldu fara með Sæborgu, sem
fór frá Seyðisfírði 14. nóvember. En báturinn
kom aldrei til Skála.18
Blöðin segja frá
Um 10 dagar liðu, frá því að Sæborg fór frá
Seyðisfírði og þar til blöð í Reykjavík fóru að
geta þess, að hennar væri saknað. Vísir segir
mánudaginn 23. nóvember, að nú sé farið að
óttast um línuveiðarann Sæborgu, sem fór
frá Seyðisfírði laugardaginn 14. nóvember.
Slysavarnafélagið hafí auglýst eftir bátnum
daginn áður (22. nóv.), en ekkert hafí frétzt.19
Sama segir Morgunblaðið daginn eftir, 24.
nóv.20 Þann 27. nóvember sögðu Morgim-
blaðið, Alþýðublaðið, Þjóðviljinn og lslend-
ingur á Akureyri, að báturinn væri talinn af.21
Vísir og Dagur á Akureyri höfðu sagt frá því
daginn áður.221 Degi stendur, að um 10 klst.
ferð sé frá Seyðisfirði til Skála á Langanesi
73