Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Blaðsíða 160
Múlaþing
Merkir hlutir
Þorvaldur P. Hjarðar
Kembukassinn
Kembukassi mjög fomlegur er til í
Hjarðarhaga og er skráð á aðra hlið
hans ártalið 1764, en á hina hlið hans
O S am. Timbrið í kembukassanum
er mjög dökkt af elli, en kambamir,
sem líta betur út eru sennilega eitthvað
yngri, enda þurfa kambar allmikið
viðhald. Sá er þetta skrifar talaði við
Þórð Tómasson minjavörð og sagna-
þul við Byggðasafnið í Skógum undir
Eyjatjöllum. Þórður segir að skamm-
stöíunin merki upphafsstafi eigandans
og am þýði „á mig“. Ártalið merki það
ár er kassinn var gerður og hafa þá verið einhver tímamót í lífi eigandans, gifting, flutningur
úr foreldrahúsum eða jafnvel merkisafmæli.
Upphafsstafirnir eru greinilega nafn einhverrar konu af ætt Guðfinnu Pálsdóttur, konu
Þorvaldar í Hjarðarhaga og kemur þá upp nafn Oddnýjar Sæmundsdóttur, langömmu Guðfmnu.
í ættfræðiriti Vestur-Skaftfellinga kemur fram að vafí leikur á hvaða ár Oddný og Árni
heija búskap í Kerlingardal og er sett í ritið árið 1765 ?, en greinilegt er að það hefur verið
1764 og þá þegar þau flytja í Kerlingardal og gifta sig.
Öruggt er að Guðfínna Pálsdóttir kemur með kembukassann í Hjarðarhaga er hún gerðist
þar húsifeyja. Þá var að rekja uppruna og sögu kembukassans ef hana væri að fínna. Það
reyndist ekkert tiltakanlega erfitt þegar aðgangur að gögnum og upplýsingum er góður. Hins-
vegar hef ég ekki fundið með óyggjandi hætti hver hafi smíðað gripinn.
Þórður Tómasson safnvörður segir grip þennan merkilegan því hann sé að meðaltali
hundrað árum eldri en samsvarandi gripir í söfnum hérlendis.
Nú verður rakið hvernig kembukassinn hefur borist mann fram af manni í Vestur-Skaftafells-
sýslu unz hann endar í Hjarðarhaga og er þar enn 237 árum síðar.
O S er greinilega Oddný Sæmundsdóttir, sem er fædd 1742, gift Áma Jónssyni, fæddum
í Skaftárdal um 1730, d. 30. júlí 1791. Ámi
og Oddný hefja búskap í Kerlingadal 1764
og búa þar til 1810, hún sem ekkja frá
1791, og var hjá dóttur sinni á Mið-Hvoli
til æviloka. Oddný lést 29. apríl 1821.
Greinilegt er að árið 1764 er mikilsvert
ártal í ævi Oddnýjar og hér vantar nánari
upplýsingar um það ártal.
Ein dóttir þeirra heitir Oddný
Árnadóttir, fædd 1777 í Kerlingardal.
Hún eignaðist síðar fyrir mann Bjarna
158