Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 143
Líðan og framtíðarsýn ungmenna á Austurlandi
íbúafjöldi á Austurlandi
1971-1997
27 sveitarfélöa
—•— Seyðisfjörður
—*— Neskaupstaður
* Eskifjörður
—Skeggjastaðahr
—■— Vopnafjörður
■■■• Hlíðarhreppur
—1— Jökuldalshreppur
-----Fljótsdalshreppur
— Fellahreppur
Tunguhreppur
Hjaltastaðahreppur
Borgarfjörður eystri
—Skriðdalshreppur
Vallahreppur
o Egilsstaðir
Eiðahreppur
-----Mjóifjörður
-----Reyðarfjörður
—Fáskrúðsfjarðarhreppur
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
" Breiðdalsvík
--■«■■■- Djúpivogur
—•— Bæjarhreppur
—'—Borgarhafnarhreppur
-----Hofshreppur
• Homafjarðarbær
—•— Austurland
Mynd 2. Ibúafjöldi á Austurlandi, frá og með áttunda áratug til loka siðustu aldar (samkv. upplýsingum frá
Þróunarfélagi Austurlands).
aðrar, hefðbundnar atvinnugreinar leggjast
af og erfitt getur reynst að byggja þær upp á
ný. I nýrri skýrslu frá RHA (2010) er bent á, að
erfítt sé að fá fram nákvæmar tölur varðandi
þetta, en ,,[a]llir virðast þó vera sammála
um að fleiri störf hafí lagst af í þessum geira
[þ.e.a.s. fískiðnaði, á tímabilinu 2002-2008]
en þau 187 sem spáð var“ (bls. 77).
Töluverðar breytingar hafa orðið á skipan
sveitarfélaga á Austurlandi á þessum tíma, og
hefur þetta auðvitað haft áhrif á opinberan
íbúafjölda svæðisins. Einkum kemur það til,
að sveitarfélagið Hornafjörður hefur ekki
talist með Austurlandi frá og með árinu 2010.
Þessar breytingar eru sýndar í töflu 1.
Aukning fjölda íbúa á Islandi í heild frá
2003 til 2009 var 11%, en meðaltal aukningar
í átta landshlutum var 7,8%. Þau þrjú svæði,
sem skilja sig verulega frá meðaltalinu, eru
annars vegar Suðurnes, þar sem íbúafjöldi
jókst verulega (+28%), og hins vegar Vest-
firðir og Norðurland vestra, þar sem íbúa-
fjöldi minnkaði (-7% og -5%). Fólksfjölgun
á Austurlandi (+11 %) var því á þessu tímabili
í meðallagi miðað við íbúatölu landsins alls,
en yfír meðalaukningu í landshlutunum átta.
Þessi þróunarhlutföll eru sýnd á mynd 4.
Breyting á íbúafjölda Austurlands 2003-
2009 var því svipuð og á öllu íslandi á sama
tíma. Þetta gæti þýtt, að íbúafjöldi á Austur-
landi hafí í raun breyst lítið vegna virkjana
og álvers, en náð eðlilegu marki árið 2009.
Þó má sjá af mynd 3, að íbúafjöldinn er langt
í frá stöðugur ennþá. Annar möguleiki er því,
að íbúafjöldi á Austurlandi sé enn að minnka,
á svipaðan hátt og fyrir framkvæmdir, og að
141