Saga


Saga - 2015, Side 172

Saga - 2015, Side 172
fjöllun um tengingar texta og mynda er oft áhugaverð og einnig vangaveltur um hvernig hann hefur búið til myndirnar. Aðeins er farið út í að bera saman við fyrirmyndir, þótt það sé yfirlýst stefna að leggja ekki áherslu á það. eitt af því áhugaverða sem fjallað er um er dæmi sem sýnir fram á greinilega fyrirmynd að risa úr útgáfu Landnámubókar frá 1688, þar sem sett er fram mynd sem á að vera af Ingólfi Arnarsyni (bls. 154–155). Sigurður Gylfi fjallar ekki um fagurfræðina, enda þótt hún geti verið áhugaverð í þessu samhengi, heldur hefur áhuga á framandleikanum sem birtist í myndum Jóns Bjarnasonar, einnig samhenginu á milli mynda og texta (bls. 132–134). Þegar kemur að hinu stærra samhengi eru niðurstöður bókarinnar á almennum nótum, og í raun og veru ekki beintengdar Jóni Bjarnasyni og alfræðiriti hans. Það er kannski nokkuð sterkt að orði kveðið, en þó er erfitt að horfa framhjá því að röksemdafærslan er í mörgu óháð alfræði Jóns bónda og sögulegum veruleika vatnsdalsins. Í grein Sigurðar Gylfa má e.t.v. segja að fremur sé litið á tilvist handritsins sem tilefni fræðilegra vanga - veltna um alþýðumenningu á 19. öld, og með þeim reynt að skýra af hverju sérsinna bóndi, sem ekki komst til mennta, fór að skrifa slíkt handrit, heldur en sjálfar viðtökurnar sem samkvæmt formála bókarinnar er megin við - fangs efni hennar. Þar segir: „við höfundar verksins höfðum ekki áhuga á að þefa uppi fyrirmyndir þessa alfræðiverks Jóns bónda nema að litlu leyti og bera þær saman við sköpun hans“ (bls. 11). Heldur er sjónum beint að rýminu til sköpunar í 19. aldar samfélaginu: „Reynt er að skýra þau áhrif sem handritið kann að hafa haft á þroska fólks og hugmyndaauðgi. Tilraun er gerð til að tengja þessa vinnu Jóns bónda við aðra skapandi hugsun á Íslandi á 19. öld. Í þessum skilningi er hér um nokkurs konar viðtökusögu að ræða“ (bls. 12). ekkert liggur fyrir um að handritið hafi farið af bæ Jóns bónda, þótt vangaveltur séu settar fram um möguleg áhrif ritanna og mynd- anna á hugsanlega lesendur (t.d. 36–37, 147 og 199–200). ekki er þar með sagt að það sé ekki áhugavert, brýnt eða æskilegt að skoða menningarheim íslenskrar alþýðu út frá eigin forsendum eða þeim fræðilega grunni sem hér er settur fram. Hér er dregin upp mynd af ein- angruðum sveitamanni sem hafi búið fjarri alfaraleið, þó svo að í 19. aldar samhengi hafi hann e.t.v. ekki búið eins afskekkt eða fjarri menning- armiðstöðvum og vatnsdalurinn er talinn vera nú á tímum. Til að rökstyðja viðtökurnar og áhrif skrifanna í nærumhverfinu er sett fram túlkun á sérstöðu alþýðumenningar á Íslandi og hún byggð á því að Íslendingar hafi búið yfir óvenjumikilli lestrarkunnáttu miðað við evrópskan almenning um miðja 19. öld. Það vekur athygli að sjá þá áherslu sem lögð er á einsleitni alþýðumenningar og hugmynd um sérstöðu íslenskrar alþýðu miðað við evrópska, án þess að það sé skilgreint nánar hvaða hópa, lönd eða svæði gæti verið átt við. Um leið og gagnrýnt er að hinn þjóðernissinnaði skóli í hugvísindum á Íslandi hafi fram eftir 20. öld litið svo á að saga lands og ritdómar170 Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 170
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.