Saga - 2019, Page 91
á þessu sviði á síðari hluta sextándu aldar án þess að til kæmi nein
lagasetning eða sjáanleg breyting á dómaframkvæmd. Hvernig
stendur á því? Þessi þróun og þær spurningar sem hún vekur teng -
ist sambærilegri umræðu meðal evrópskra sagnfræðinga á undan-
förnum árum um eflingu ríkisvalds og samfélagsbreytingar á ár -
nýöld. Mjög mikil fækkun manndrápa (þá er átt við bæði mann víg
og morð, en langflest manndráp á tímabilinu 1450–1650 sem heim-
ildir eru til um voru mannvíg) frá miðöldum og fram á nútíma í
Evrópu og víðar hefur vakið æ meiri athygli sagnfræðinga. Afnám
mannvíga sem löglegra athafna hefur þá gjarnan verið tengt við
breytta og sterkari stöðu ríkisvaldsins.9
Ólíklegt er að öll mannvíg og morð á tímabilinu 1450–1650 hafi
verið skráð í heimildir.10 Erfitt er að ráða í hvað vantar og það þjón -
ar litlum tilgangi að vera með getgátur á því sviði. Það er aðeins
unnt að fjalla um þróun mannvíga út frá þeim atvikum sem heim-
ildir eru til um. Þó má leiða að því líkur að fólk af lægri stigum sem
gerðist sekt um voðaverk eða þjófnað hafi verið tekið af lífi án þess
að fjallað væri um það í skjölum. Mjög erfitt er að fjalla um eða færa
sönnur á slíkt af augljósum ástæðum.
Fyrri rannsóknir á þessu sviði eru mjög takmarkaðar. Ritað hefur
verið um efnið í yfirlitsritum11 og rannsókn hefur verið gerð á
skyldu efni, heimreiðum, og um það rituð grein.12 Hins vegar hefur
ekki áður verið gerð rannsókn á mannvígum og morðum á tíma-
bilinu. Því hafa ekki áður verið forsendur til að tengja íslenska sögu
við umræðu um sögu fjórtándu til sautjándu aldar meðal sagn fræð -
inga sem hefur verið mikil undanfarna áratugi á alþjóðlegum vett-
manndráp verður að morði 89
eða frumritum á skinni. yfirleitt er heimildagildið hafið yfir vafa, alveg ljóst
hverjar kringumstæður voru og hverjir stóðu að dómum, m.a. vegna þess að
viðkomandi menn koma fyrir í öðrum skjölum, oft mörgum.
9 Sjá t.d. Steven Pinker, The Better Angels of Our Nature. Why Violence has Declined
(New york: Penguin 2012), bls. 59–129.
10 Um vopnaskak og hernað á þessu tímabili sjá Birgi Loftsson, Hernaðarsaga
Íslands 1170–1581 (Reykjavík: Pjaxi 2006).
11 Íslenskur söguatlas I. Frá öndverðu til 18. aldar. Ritstj. Árni Daníel Júlíusson, Jón
Ólafur Ísberg og Helgi Skúli Kjartansson (Reykjavík: Almenna bókafélagið
1989), bls. 138–139; Björn Þorsteinsson og Guðrún Ása Grímsdóttir, „Enska öld-
in með viðaukum eftir Sigurð Líndal“; Saga Íslands V. Ritstj. Sigurður Líndal
(Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag og Sögufélag 1990), bls. 79–100.
12 Helgi Þorláksson, „Vald og ofurvald“, bls. 280–286.
Saga vor 2019 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 13.5.2019 17:21 Page 89