Saga - 2019, Page 109
Þá hefur verið sýnt fram á hið sama í Noregi87 og Svíþjóð.88 Í Noregi,
þar sem heimildir eru til, voru manndráp nokkuð tíð meðal al -
mennra bænda á sautjándu öld. Sem dæmi má nefna manndráp í
Rogalandi og í Vestur-Noregi á árunum 1613–1659, en manndrápin
voru 34 að tölu á þessu tímabili. Hérlend þingbók er til frá fyrri
hluta sautjándu aldar (nánar tiltekið úr Árnessýslu 1619–1626) og
sýnir hún ekki hliðstæðan fjölda manndrápa, raunar alls engin
manndráp.89 Harkaleg löggjöf og dómaframkvæmd á vegum mið -
stjórnarvaldsins í Danmörku og Noregi um og upp úr 1620 leiddi til
þess að mannvígum fækkaði þar hratt á sautjándu öld. Það sem
áður voru mannvíg og menn gátu leyst með því að greiða vígsbætur
var nú skilgreint sem morð og fyrir það voru menn dæmdir til
dauða og teknir af lífi. Þetta hefur verið tengt almennt sterkari stöðu
ríkisvaldsins á Norðurlöndunum á sautjándu öld.90 Þessi fækkun
mannvíga þar var hins vegar nokkru síðar á ferð en til dæmis í
Englandi.91
Í Danmörku, Finnlandi og Noregi er greinilegt að mannvíg meðal
almennra bænda voru meginviðfangsefni þessara aðgerða ríkis-
valdsins, eða að minnsta kosti stór þáttur í þeim. Á Íslandi var þró-
unin með nokkuð öðrum hætti. Um er að ræða að minnsta kosti tvo
þætti sem voru ólíkir því sem var annars staðar á Norður lönd unum.
Í fyrsta lagi var ekki um að ræða að ríkisvaldið þyrfti að fást við
fjölda mannvíga meðal almennra bænda, til dæmis alls ekki á tíma-
manndráp verður að morði 107
87 Erling Sandmo, Voldssamfunnets undergang. Om disiplineringen af Norge på 1600–
tallet (Oslo: Universitetsforlaget 1999). Hans Eyvind Næss, Trolldomsprosessene
i Norge på 1500–1600-tallet (Stavanger: s.n. 1981). Jørn Sandnes, Kniven, ølet og
æren: Kriminalitet og samfunn på 1500- og 1600-tallet (Oslo: Universitetsforlaget
1993).
88 People Meet the Law. Control and Conflict-Handling in the Courts: The Nordic
Countries in the Post-Reformation and Preindus trial Period. Ritstj. Eva Österberg
og Sølvi Sogner (Oslo: Universitetsforlaget 2000); Eva Österberg, „Våld og
våldsmentalitet blandt bönder“, Scandia 49 (1983).
89 Erling Sandmo, Voldssamfunnets undergang, bls. 43; Guðrún Ása Grímsdóttir,
„Sýslumaðurinn í Ási“. Líndæla. Sigurður Líndal sjötugur (Reykjavík: Hið ís -
lenska bókmenntafélag 2001), bls. 195–211. Sjá einnig https://skjalasafn.is/
domabokagrunnur (skoðað fimmtudaginn 3. maí 2018).
90 Heikki ylikkangas, „What happened to violence?“, bls. 94–111. Sjá einnig
Erling Ladewig Petersen (ritstj.), Maktstaten i Norden i 1600-tallet og de sociale
konsekvenser. Rapporter til den XIX nordiske historikerkongress (Odense: Odense
Universitetsforlag 1984), bls. 7–130.
91 Steven Pinker, The Better Angels of our Nature, bls. 63.
Saga vor 2019 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 13.5.2019 17:21 Page 107