Helga Law Journal - 01.01.2021, Side 10

Helga Law Journal - 01.01.2021, Side 10
Helga Law Journal Vol. 1, 2021 Pétur Dam Leifsson 1110 Lykilhugtök: Réttarsaga; þjóðaréttur; hugmyndasaga. Útdráttur: Í þessari grein leitast höfundur við að útskýra meginefni í sögulegri þróun þjóðaréttarins frá sjónarhorni þess hvernig réttarsviðið virðist hafa þróast sem samleikur eðlisréttar og mannasetninga, sbr. hugtak rómarréttar um ius gentium, sem síðan tók á sig ýmsar myndir allt frá miðöldum og fram til þess að eiginlegur þjóðaréttur kemur til sögunnar á 17. öld og síðan í gegnum frekari þróun þjóðaréttar fram á 20. öld. Eins og stutt grein af þessu tagi býður helst upp á þá er hér farin sú leið að stikla á stóru, meðal annars í gegnum ágrip af persónusögu ýmissa helstu fræðimanna þjóðaréttarins á þessari vegferð í gegnum söguna. Á meðal helstu fræðimanna þjóðaréttar liðins tíma sem hér er vikið að eru þeir Grótíus, Vitoria, Suárez, Gentili, Pufendorf, Wolff og Vattel, en einnig að síðari tíma mönnum á borð við Oppenheim, Kelsen og Lauterpacht. Þá er hér jafnframt reynt að gera nokkra grein fyrir áhrifum kunnra heimspekinga á borð við Hobbes, Rousseau, Kant og Hegel á þróun hugmynda um þjóðarétt. Helsta niðurstaða höfundar er einkum sú að þjóðaréttur, eða fyrrum ius gentium, virðist jafnan hafa leitað þess jafnvægis á milli eðlisréttar og mannasetninga sem aldarfar sérhvers tíma hefur gert ákall um. Keywords: Legal history; international law; ideology. Abstract: In this article the author is attempting to explain major issues in the historical development of public international law from the perspective of how that field of law seems to have developed as interplay of natural law and man made law, as is exhibited in the roman law concept of ius gentium, that later on underwent certain development from the middle ages and until emergence of public international law in the 17th century and later on through further development towards the 20th century. As a brief article of this kind can only sustain so much the path taken here is to provide an overview by intertwining the major development with the personal biography of some of the foremost scholars of public international law in the past. Among those scolars being addressed in this context are Grotius, de Vitoria, Suárez, Gentili, Pufendorf, Wolff, de Vattel, but also more contemporary scholars such as Oppenheim, Kelsen and Lauterpacht. Also, some contributions of certain major philosophers to public international law are addressed such as by Hobbes, Rousseau, Kant and Hegel. The main conclusion of this author is that public international law, or in the past ius gentium, seems to seek some sort of a balance between ideas of natural law and man made law, adapting to the quest in each era in time. 1 Inngangur Öll fyrirbæri eiga sér forsögu og það gildir einnig um það sérsvið lögfræðinnar sem við köllum þjóðarétt. Nú til dags lítum við gjarnan þannig á að til þjóðaréttar teljist þær réttarreglur sem viðurkennt er að gildi með bindandi hætti í lögskiptum ríkja eða annarra þjóðaréttaraðila á milliríkjagrundvelli.1 Þessi sýn á þjóðarétt er þó í megindráttum afar ný af nálinni og endurspeglar einkum hugmyndir manna um réttarsviðið sem eiga rætur sínar að rekja til 19. og 20. aldar. Samkvæmt þeirri nálgun myndum við líka almennt staðhæfa að hornsteinar þjóðaréttarins séu enn sem komið er hin formlega jafnsettu fullvalda ríki og að þjóðaréttur sé þá þær gildandi reglur fyrir samskipti ríkjanna sem þau teljast hafa komið sér saman um eða fallist á, þá einkum með þjóðréttarsamningum eða með tilurð þjóðaréttarvenja. Sé aftur á móti farið lengra aftur í aldir hefði framangreind nálgun í anda vildarréttar (pósitífisma) á einhvers konar þjóðarétt þótt afar framandi og sá raunar ekki stað fyrr en á 18. öld. Þannig höfðu til dæmis miðaldamenn í Evrópu almennt ekki mótað með sér hugmyndir um fullvalda þjóðríki í þessum skilningi og hin merkustu lög sem þóttu gilda um samskipti manna og þá einnig á milli ólíkra þjóða í álfunni voru af meiði eðlisréttar (náttúruréttar) sem þótti leiða af óyggjandi röklögmálum náttúrunnar og eðli manna. Til að skilja betur þjóðarétt og þróun hans til þess að verða það sérstaka réttarkerfi sem hann er í dag er því gagnlegt að velta fyrir sér spurningum um það hvaðan þjóðaréttur kom og hvernig það gerðist í stórum dráttum. Sú saga er bæði löng og margslungin og í grein af þessu tagi verður því aðeins stiklað á stóru varðandi það sem greinarhöfundur telur standa upp úr í því sambandi. Hér verður því eðli máls samkvæmt ekki gerð tilraun til þess að gera sögu þjóðaréttarins sem slíks viðhlítandi skil, þ.e. hvað varðar þróun ólíkra efnisreglna eða stofnana á mismunandi sviðum réttarins, heldur verður hér aðeins leitast við að útskýra nokkra helstu leiðarsteina í hugmyndafræðilegri þróunarsögu þjóðaréttar. Þar virðist að mati þess sem þetta ritar standa upp úr hvernig einhvers konar reglur sem leiddu til þjóðaréttar, eða ius gentium, virðast hafa þróast í átt til þess að verða sérstakt réttarkerfi samhliða viðteknum eðlisrétti, vex síðan ásmegin með eflingu eiginlegra þjóðríkja í nútímaskilningi frá og með 17. öld og verður síðan stig af stigi æ frekar að mestu bundið við vildarrétt frá og með 18. og þó einkum 19. öld, en tekur síðan aftur nokkuð mið af skipbroti svo afdráttarlausra áherslna á vildarrétt í þjóðarétti frá og með 20. öld. Segja má að fræðilegt framlag greinarinnar hljóti öðru fremur að felast í því að reynt er að varpa nokkru ljósi á þennan samleik ius gentium og eðlisréttar í sögulegu samhengi og hvernig sú hugmyndasaga fléttast einnig saman við persónusögu þeirra merku einstaklinga sem sjónum verður hér sérstaklega beint 1 Björg Thorarensen og Pétur Dam Leifsson, Þjóðaréttur (Bókaútgáfan Codex 2011) bls. 17.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224

x

Helga Law Journal

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helga Law Journal
https://timarit.is/publication/1677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.