Andvari - 01.01.2013, Qupperneq 48
46
JÓN SIGURÐSSON
ANDVARI
Þeir sem minnast göfugrar og góðrar móður, muna hvernig hún inn-
prentaði einfalda og trausta siðalærdóma og bað fyrir börnunum sínum.
Þeir sem muna góða eiginkonu sem á sama hátt varði miklum tíma í
að innprenta börnum sínum þetta sama, umvefja þau ástríki og fyrir-
bænum, þeir vita að þessi undirstaða fyrir lífið er sú sem varir best og
hefur þess vegna mest gildi.
í bernsku minni fundum við sem ung vorum, alveg eins og æska
nútímans, að framtíðin var okkar. Við fundum ólgandi orku í blóði og
vöðvum. Við þráðum að vaxa og takast fangbrögðum við að skapa betri
heim, vinna að því að framundan yrðu betri tímar, bætt afkoma, bjart-
ara líf fyrir alla. En í þá tíð var ekki til neins að heimta af öðrum. Við
vissum að það sem gera þurfti urðum við að gera sjálf. Atvikin höguðu
því svo að ég barst ungur í fang félagsmálahreyfingar sem átti fyrir sér
að vaxa og verða áhrifarík um bætt kjör almennings. Ég trúði því þá að
það sem mest kallaði að, það sem beita þyrfti allri orku og áhuga að,
væri að bæta kjör þeirra sem minnst báru úr býtum fyrir strit sitt. ...
Það hafa verið byggð mikil skólahús, skólamenntun er nú auðfengn-
ari öllum sem áður var aðeins fyrir fáa. En hvað kenna þessir skólar?
Fyrst og fremst ýmiss konar hagfræði. ... En hvar eru skólar sem vekja
athygli barna og ungmenna á, hvað er hinn raunverulegi tilgangur
lífsins sjálfs? Hvar eru skólar sem leggja áherslu á að kenna einföld
kristin fræði, sem kenna siðalærdóm Krists, sem var, er og mun alltaf
verða undirstaða alls heilbrigðs andlegs lífs?
Á bernskuheimili mínu og síðar á mínu eigin heimili var lítil mynd
sem hékk á vegg þar sem börn sváfu. Þessi mynd var af sofandi barni,
en til hliðar og ofan rúmsins sveif falleg, ung mey með vængi. ... Fyrir
þá sem ekki vilja trúa eða ekki þykjast trúa á neitt nema sinn eigin mátt
og megin ætla ég að nefna hér frásagnir af atburðum sem hafa gerst
og vel má tengja trúnni um að góðar verur eða englar séu í fylgd með
mönnum, bjargi þeim, gefi þeim styrk og geri þeim göngu lífsins léttari
og árangursríkari. ...
Þeir sem ekki trúa eða ekki vilja trúa segja: Þetta eru bara hug-
dettur, hugdettur sem allir menn fá meira eða minna. - Hvað veldur
því að þegar maður er upptekinn hugsun um lausn einhvers málefnis,
gruflar um það og ætlar engu öðru að komast að, kemur skyndilega í
hugann allt annað málefni, skýrt og greinilegt, og ryður hinu á brott?
Slíkir atburðir gefa mér vissu um að góðar vættir eru alltaf að leitast
við að hjálpa og leiðbeina. ... Hvernig má gera sig opinn fyrir þessum