Andvari - 01.01.2013, Blaðsíða 54
52
JÓN SIGURÐSSON
ANDVARI
sjónir, maður laus við allar vífilengjur ... fremur þurr á manninn, en
birti strax yfir honum þegar ég kvaðst vera með áætlun upp á vasann.
... Ég dró þá áætlun númer tvö upp úr vasanum ... að vísu helmingi
dýrari ... Vilhjálmur reisti sig í stólnum og það var kalt tillit sem hann
sendi mér, eins og hann vildi segja: Þessarar tækni var nú ekki þörf á
mig, þér hefðuð sem best getað lagt fram dýrara planið strax ... það
hnussaði í honum, en við áætluninni tók hann ... tók sér nú lengri frest,
þrjá daga.
Að þeim liðnum var hann ekki einasta búinn að taka ákvörðun,
heldur safna nægu hlutafé, búinn að setja öll sín háspennuhjól í gang
og hafði mig við hlið sér sem tæknilegan ráðunaut ... og fól mér að
annast kaup á vélinni... Daginn eftir, 3. júní, var Flugfélag Akureyrar,
síðar Flugfélag íslands, formlega stofnað... Gjaldeyririnn? Hann gerði
þá hluti sem hann taldi rétt að gera og stóð eða féll með þeim, lét engan
segja sér fyrir verkum, bauð þeim birginn fyrir sunnan, var eiginlega að
láta yfirvöld standa frammi fyrir gerðum hlut... knúði síðar fram sam-
þykkt Landsbankans á ráðstöfun gjaldeyrisins til flugvélarkaupanna.“
Erlendur Einarsson var einn þeirra ungu manna sem Vilhjálmur Þór
þjálfaði og stýrði til stórra verkefna. Hann tók, að tillögu Vilhjálms, við
af honum sem forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Vilhjálmur
hafði áður falið Erlendi forstöðu fyrir Samvinnutryggingum. Erlendur
segir í endurminningum sínum: „Vilhjálmur Þór er eftirminnilegur
maður. ... Mér fannst gaman að vinna með honum en hann gat verið
nokkuð sérstakur og hann var afspyrnu kröfuharður. ... Vilhjálmur
Þór var mikil hamhleypa til vinnu og hann hélt sínum mönnum einnig
við efnið. Mér virtist hann reka trippin mjög vel áfram. Hann var ekki
afskiptasamur og við fengum að vinna okkar verk í friði. Það er mikill
kostur... en hann var ekkert lamb að leika sér við ef maður skilaði ekki
góðum árangri.
Hann virkaði svolítið fráhrindandi ..., tók lítinn þátt í umræðum um
hugmyndafræðileg efni innan Sambandsins. Hann sór sig meira í ætt
við þá stjórnendur í viðskiptalífinu sem brotist höfðu til metorða fyrir
eigin rammleik. En hann átti sér stóra drauma um víðtæka uppbygg-
ingu atvinnulífsins með þátttöku Sambandsins... Vilhjálmur Þór var
mjög umdeildur maður og hann var oft hafður að skotspæni í pólitískri
umræðu. Sú mynd sem andstæðingar hans reyndu að draga upp af
honum, að hann væri harðsvíraður kaupsýslumaður ... var einfald-
lega ekki rétt. Vilhjálmur Þór var allt öðruvísi persóna. Hann var mjög