Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2013, Side 152

Andvari - 01.01.2013, Side 152
150 SVEINN EINARSSON ANDVARI hafði þurrkast út, hann einn lifði eftir með minningar um voðaverk gagn- vart saklausum borgurum. Meira að segja er ýjað að því að hann hafi gert einni heimakonunni barn, en það hafi seinna verið rist fóstur úr kviði henn- ar. íslensk skáld hafa yfirleitt verið svo upptekin af andapollinum hér eða samskiptunum við okkar hernámslið að ógleymdum dönskum kaupmönnum forðum, að þau hafa leitt hjá sér þann mikla harmleik í Víetnam (sem og aðra viðlíka), þó að fjöldi fólks á íslandi hafi að vísu ekki látið sér standa á sama. Þessi sjónleikur skipar sér þannig í flokk með Syni skóarans og dóttur bakar- ans eftir Jökul Jakobsson og 13. krossferðina eftir Odd Björnsson. Elín Helena verður þess vör, að Helena hefur alla tíð séð til með föður sínum, Rikka. Hún vill nú að það sé sinn gjörningur, að Helena komi til íslands og þær systur sættist áður en það er orðið of seint og Elín öll. Það reynist þó þyngri þrautin, þó að Helena taki sér ferðina á hendur; enn er flett ofan af atburðum fortíðar. í stuttu máli sagt hafði Elín haldið heim til Islands frá Ameríku með dóttur sína í óþökk þeirra Helenu og Rikka (sem væntan- lega var þá fjarverandi að stríða í öðrum löndum). En fleira hangir á spýtunni. Smám saman hefst það upp úr þeim systrum að Helena er í raun móðir Elínar Helenu og hafði átt hana sextán ára gömul. Líkt og Elín hafði við móður- missi hálft í hvoru gengið yngri systur sinni í móðurstað, tekur hún nú að sér barnið og gerir að sínu, því að svona utankjörstaðarkrakkar sem unglingum verður á að eignast, eru ekki við hæfi í Amríkunni. Sem sagt, Elín Helena er ættleidd af Elínu og Rikka, og það gefur henni rétt á að halda til Islands með barnið, því að Elín getur ekki fyrirgefið manni sínum að hafa lagst með barnungri systur sinni. í rimmu þeirra systra þegar þær loks hittast, ber Elín reyndar á systur sína, að hún hafi komið víðar við og Elín Helena sé ekki einu sinni dóttir hennar; en þetta er eftir að sá ís sem brynjað hefur sinni Elínar er örlítið farinn að þiðna og hún sér ekki lengur skýrt. Helena segist aldrei hafa elskað annan mann. Efnið verður svo ekki rakið lengra, aðeins bent á að nafngift þessara þriggja kvenna er engin tilviljun, „svo eru mönnunum ofin örlög svo undarleg“. A ytra borði kann að virðast sem efnið sé melódramatískt, þegar það er rakið á jafn prósaískan hátt og hér, en það væri harla ómaklegur dómur. Þetta leikrit er samið af sérlegri hind. Fléttan er svo haglega gerð, að leitun mun á sambæri- legri efnismeðferð í íslenskum leikskáldskap, með sálfræðilegum dýptarmæli og vitsmunalegri skerpu, sem rúmar bæði semantískar vangaveltur um sann- leika og veruleika, um upplifða minningu og þó hagrædda, um persónulega ást og föðurlandsást, um mynd af veruleika og veruleikann sjálfan, sem svo erfitt er að fanga, jafnvel í núinu. Rikki getur ekki horfst í augu við minn- inguna; hann sveipar hana skáldlegri mynd til að lina sársaukann. Þar kemur tengingin við ljóð skáldsins. Evigt ejes kun det tabte, sagði hinn Ibseninn. Ef þá nokkurn tímann.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.