Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2013, Page 164

Andvari - 01.01.2013, Page 164
162 SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR ANDVARI má sjá lýsingar sem auðvelt er að tengja við móðurleit þótt slík túlkun liggi ekki endilega á yfirborði textans. Hér má sem dæmi nefna hrifningu drengs- ins á ýmsum konum; þrá hans eftir að „hverfa inn um gatið á maganum" á fallegum gítar sem hann sér í verslunarglugga - og minnir hann á konu - og jafnvel atvik þar sem lýst er grindhvaladrápi í Færeyjum snýst um lítinn kálf sem liggur þétt upp að dauðri móður sinni og drengnum býðst að skera, hann neitar enda hefur „sorgarsöngur sírenunnar“ (en þannig lýsir hann hljóðunum í hvalnum) níst hjarta hans (45). Það sem vekur strax eftirtekt þegar Andlit er lesin er stíll frásagnarinn- ar. Aðalstílbragð textans er úrdráttur, sagt er frá stórviðburðum á allt að því óhugnanlega hlutlægan hátt. Þess konar frásagnarháttur er frekar í anda ís- lendingasagna en fyrri skáldsagna þessa höfundar. En Bjarni hefur meist- aratök á þessum frásagnarhætti ekki síður en hinni ljóðrænu fantasíu Borgar- innar á bak við orðin og Næturvarðar kyrrðarinnar eða hinni sprellandi fáránleikakómedíu Mannætukonunnar. Á baksíðu bókarkápunnar er að finna þessa setningu: „Hér segir Bjarni Bjarnason frá litríkri æsku á áttunda ára- tugnum, hvernig hann elur sig upp að mestu leyti sjálfur, þvælist milli staða innanlands og utan [ ...]“. Æska sögumanns er vissulega sérstök og á bak við setninguna „elur sig upp að mestu leyti sjálfur“ býr harmur, barnið elur sig upp að mestu leyti sjálft vegna vanrækslu og sinnuleysis lánlausra foreldra. An þess að höfundur útmáli nokkurs staðar tilfinningar sínar má segja að skuggi hvíli yfir þeirri bernsku sem lýst er. Hér er sagt frá dreng sem hrellir kennarann sinn þá fáu daga sem hann skrópar ekki í skólanum, þvælist í bænum og hnuplar úr búðum, allt án afskipta foreldra sem spyrja engra spurn- inga. Hann fréttir af skilnaði foreldra sinna fyrir tilviljun þegar hann kemst að því að faðir hans hefur búið annars staðar í marga mánuði. Hann ákveður að flytja til föður síns í Færeyjum þegar hann er tíu ára og móðirin reynir ekki að telja honum hughvarf. Gott dæmi um úrdrátt í frásögninni er þegar hann lýsir sjö ára aðskilnaði frá móður sinni á þennan hátt: „Vorið þegar ég var sautján ára hafði ég ekki náð að spjalla við hana nema í síma í sjö ár“ (141). Annað gott dæmi er eftirfarandi frásögn úr áður nefndum kafla „Fjölskyldumyndir“: Annars var pabbi útgerðarmaður, átti tólf tonna bát sem hét Kátur. Mig hafði oft langað í siglingu á þeim bát en var ævinlega skilinn eftir í landi. Svo gerist það einn morgun að hann spyr hvort ég vilji ekki koma með í túr. Ég veit ekki hvers vegna, en ég afþakkaði. Hann reyndi að ýta á eftir mér, en mér varð ekki haggað. Það síðasta sem ég myndi gera væri að fara í þessa sjóferð. í þessari ferð sökk Kátur, með svarthvítu fjölskyldumyndina frammi í lúkar, eins og til var ætlast af honum, og faðir minn fékk tryggingapeningana. Þurfti ekki að hafa barn með í túrnum til að sannfæra dómarana. (37) í meitluðum frásögnum eins og þessari er að sjálfsögðu sögð mun stærri saga, eða með öðrum orðum er mikill undirtexti í frásögninni sem varla fer framhjá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.