Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2013, Side 169

Andvari - 01.01.2013, Side 169
ANDVARI SÍÐASTA FREISTINGIN 167 leikurinn er færður upp og þá eru allir þorpsbúar með í leiknum. Ungur fjár- hirðir fær hlutverk Krists, fögur ekkja á að leika Maríu Magdalenu, en hún er jafnframt eina vændiskonan í þorpinu. Veruleiki lífsins, ekki síst pólitískar uppákomur, valda því, að leikendurnir lifa sig inn í hlutverk sín með afar óvæntum hætti. Píslarsagan endurtekur sig hér sem pólitískur veruleiki. í Síðustu freistingunni horfir skáldið dýpra, nú er það ekki aðeins maður- inn og samfélagið, hin pólitísku átök, heldur maðurinn sem hangir á kross- inum, um hann snýst sagan frá upphafi til enda. Hver var hann? Til hans er horft, inn í sál hans, þar sem þemun úr grísku dymbilvikunni og frásögninni um hinn lífsglaða og dansandi Sorbas mæta lesandanum. Hér er það krossfestingin sem grípur lesandann, í fyrstu virðist allt vera eftir bókinni en sagan tekur óvænta stefnu þegar freistarinn kemur til Jesú milli draums og vöku eins og lítil stúlka og segir: „Guð sendi mig til að bera sætu á varir þér. Menn hafa gefið þér margt beiskt að drekka; himnarnir hafa gert slíkt hið sama. Á allri þinni ævi hefurðu ekki litið einn einasta gleðidag. Móðir þín, bræður, lærisveinar; fátækir, lemstraðir, kúgðir - allir, allir yfirgáfu þig á hinni óttalegu stund. Þú varst kyrr á klettinum í myrkrinu, aleinn og óvarinn. Og þá sá Guð Faðir aumur á þér. ‘Þú þarna, hversvegna situr þú?’ kallaði hann til mín. Ertu ekki verndarengill hans? Jæja, farðu niður og bjargaðu honum. Ég vil ekki að hann verði krossfestur. Nú er nóg komið!“ „Drottinn hersveitanna," svaraði ég honum skjálfandi, „sendirðu hann ekki til jarðar til að láta krossfesta sig til bjargar mannkyni? Þessvegna sit ég hér rólegur: ég hélt það væri þinn vilji.“ „Látum hann krossfestast í draumi," svaraði Guð; „látum hann finna smekkinn af sama ótta, sömu kvöl.“ „Verndarengill,“ hrópaði Jesús og tók báðum höndum um höfuð engilsins til að missa hann ekki, „verndarengill, ég er ringlaður - var ég ekki krossfestur?" Engillinn lagði alhvíta hönd sína að æstu hjarta Jesú til að róa það. „Vertu rólegur, láttu ekki truflast, elskulegur,“ sagði engillinn við hann, og töfrandi augu hans kvikuðu. „Nei, þú varst ekki krossfestur.“ „Var krossinn þá draumur - og naglarnir, kvölin, sólin sem sortnaði?" „Já, draumur. Þú lifðir gervalla píslarsögu þína í draumi. Þú steigst uppá krossinn og varst negldur við hann í draumi. Þessi fimm sár á höndum þér, fótum og hjarta voru veitt þér í draumi, en af þvílíku afli, að - sjáðu, það blæðir enn.“ (Bls. 443). „Það var faðir minn sem breytti blóði mínu í blek.“ Þannig minnist Kazantzakis föður síns, en í orðunum er einnig tilraun til skýringar á áráttu skáldsins til að skrifa. Orðalagið er tilfinningaríkt og afgerandi eins og stíll hans að öðru leyti. í þeim anda skrifar hann um sjálfan sig í formála að Síðustu freisting- unni: „Eg hef aldrei fylgt Kristi blóðugan stíginn upp til Golgata með slíkri skelfingu, aldrei lifað mig inn í líf hans og þjáningu með slíkri ógn og samlíð- un eins og þær nætur og daga, er ég skrifaði Síðustu freistingu Krists. Meðan ég skrifaði þessa játningu um sálarangist og hina miklu von mannkynsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.