Andvari - 01.01.2013, Qupperneq 182
180
GUNNAR STEFÁNSSON
ANDVARI
IV
Hvernig höfðar Gunnar Gunnarsson til nútímans og hvaða verk hans lifa best?
Það eru vafalaust þær þrjár sögur sem hér voru síðast nefndar. Sögulegu skáld-
sögurnar, þær sem mynda Landnámsflokkinn sem höfundur nefndi svo, munu
líklega seint kveikja almennan áhuga lesenda. Um þær og trúarleg viðhorf sem
í þeim birtast hefur nokkuð verið ritað, helst er bók Höllu Kjartansdóttur, Trú
í sögum, um heiðni og kristni í sögum og samtíma Gunnars Gunnarssonar.
Fyrsta sögulega skáldsaga höfundarins, rituð löngu á undan hinum, varð
langþekktust þeirra á sínum tíma, Fóstbræður, um Ingólf og Hjörleif. Þetta
er eiginlega rómantísk skemmtisaga og mun hafa verið vinsæl drengjabók
í Danmörku. Til er af henni, eða hluta hennar skólaútgáfa á dönsku. Sjálfur
var Gunnar ekki ánægður með söguna síðar, frekar en Borgarættina, en hann
varði síðustu kröftum sínum til að umskrifa Fóstbræður á íslensku. Þessi saga
yrði seint talin góð drengjabók nú á tímum og því síður heppileg stúlkum,
miðað við það hvernig litið er á samskipti kynjanna þar. Sagan Fóstbræður
hefur ekki alls fyrir löngu orðið fyrir óþyrmilegu höggi. - Guðni Elísson
samdi fyrir nokkrum árum grein af því tilefni að fram kom sú hugmynd að
gera geysistóra afsteypu af víkingaaldarsverði, táknmynd Þjóðminjasafnins.
Úr því varð ekki sem betur fór. Guðni ritaði í þessu samhengi:
„Ömurleg flatneskja víkingarómantíkur á lítið erindi við íslenskan sam-
tíma. Mér er enn minnisstætt augnablikið þegar mér varð ljóst að allar mann-
gildishugsjónir geta látið undan frammi fyrir blindunni sem miklar víkings-
lundina. í skáldsögunni Fóstbræður eftir Gunnar Gunnarsson ráðast norrænir
víkingar til uppgöngu í lítið þorp á Englandi. Þeir myrða karlana og stela
svo öllu sem hönd á festir. Konur og börn komast undan á flótta og fela sig í
skóginum umhverfis þorpið: „Fóthvatir víkingar dreifðust um skóg og kjarr.
Þeir þekktu ensku konurnar. Þær voru ekki allar vanar að fela sig vandlega.
Þær vissu það vel, að víkingarnir sóttust ekki eftir lífi þeirra. Og þær voru því
ekki mótfallnar að láta ljóshærðan víking faðma sig. Menn þeirra og bræður
gátu aldrei orðið þess vísari, að það hafði ekki verið af nauðung. Það var
sólheitur sumardagur. Víkingarnir leituðu um skóginn, kófsveittir, og margir
fengu fyrirhöfn sína endurgoldna.“
Svona hugmyndir mega liggja dauðar.“
(Guðni Elísson: Rekferðir. Islensk menning í upphafi nýrrar aldar, 2011,
bls. 176-77.)
Vissulega eru margar ógeðfelldar hugmyndir fyrri manna sem mega dauðar
liggja. En okkar er að vinsa úr það sem lífvænlegt er og heilsusamlegt og
greina það frá hinu.
Sögur Gunnars Gunnarssonar mynda flokka: Rómantískar (melódrama-
tískar) sögur, kreppusögur, skáldævisögur, sögulegar skáldsögur, sveitasögur.