Jökull - 01.01.2021, Page 93
Þorlákur Sverrisson og Kötlumyndir hans
Eiríkur Þ. Einarsson
Lindasmára 37, 201 Kópavogi
eirikur@eirikur.is; https://doi.org/10.33799/jokull2021.71.091
Afi minn, Þorlákur Sverrisson var fæddur í Klauf í
Meðallandi 3. apríl 1875. Hann lést í Vestmannaeyj-
um 9. ágúst 1943. Þorlákur var kvæntur Sigríði Jóns-
dóttur í Skálmarbæ í Álftaveri og bjuggu þau þar frá
1902 til 1911, en þá fluttu þau til Víkur í Mýrdal og
bjuggu þar til ársins 1925. Börn Sigríðar og Þorláks
voru Sigríður Guðrún, f. 13. apríl 1902, Óskar Jón,
f. 5. nóvember 1906 og Guðrún f. 20. september 1920
en hún var móðir mín. Þau eru nú öll látin.
Veturinn 1913–1914 dvaldi Þorlákur í Reykjavík
og nam ljósmyndafræði hjá Magnúsi Ólafssyni, ljós-
myndara. Stundaði hann myndatökur um skeið í Vík.
Eftir að hann flutti til Vestmannaeyja hætti hann fljót-
lega myndatökum.
Árið 1915 hóf Þorlákur verzlunarrekstur í Vík í
Mýrdal. Fékk hann þá svonefnt borgarabréf. Er það
undirritað og útgefið af þáverandi sýslumanni, Sigur-
jóni Markússyni,. Hefst það með svofelldum orðum:
„Sigurjón Markússon, sýslumaður í Skaftafellssýslu
kunngjörir: Mér hefur tjáð Þorlákur Sverrisson, tómt-
húsmaður í Vík í Hvammshreppi, að hann óski eftir að
fá heimild og réttindi til þess að reka verzlun á kaup-
túninu í Vík í Vestur-Skaftafellssýslu“. Fyrir þetta
borgarabréf greiddi Þorlákur kr. 50, og er það útgefið
hinn 1. desember 1915. Þar með hófst verzlunar-
rekstur Þorláks, sem fluttist síðan til Vestmannaeyja.
Frá verzlunarárum hans í Vík eru varðveittar ýmsar
bækur, sem eru gagnlegar heimildir um verzlun og
viðskipti á þeim tíma, bæði hvað snertir vöruúrval,
vöruheiti, framleiðendur og seljendur, og ekki hvað
sízt um verðlag á þessum árum. Skal þess getið, að á
árum fyrra stríðs, 1914–1918, vildu Bretar hafa eftirlit
með viðskiptum landsmanna, þ.e. að sjá um, að vör-
ur, sem gætu nýtzt andstæðingnum, lentu ekki í hans
höndum, og varð Þorlákur að skuldbinda sig varðandi
viss atriði til ríkisstjórnar Hans Hátignar, Bretakon-
ungs (Einar H. Eiríksson, munnlegar upplýsingar).
Þorlákur Sverrisson
Þorlákur Sverrisson og fjölskylda bjó fyrst á Stóru
Heiði í Eyjum eða þangað til Þorlákur keypti Hof, sem
var sýslumannssetur í Eyjum, tvílyft timburhús byggt
1907 og meðfylgjandi tún. Hann stundaði lítilsháttar
búskap þar og hélt hesta, a.m.k. eina kú og nokkrar
kindur. Hofstúnið lá meðfram Urðarvegi og náði rétt
austur fyrir þurrkhúsið. Hofstúnið var selt um árið
1957 og voru þar byggðir svonefndir verkamanna-
bústaðir, fjögur þríbýlishús hús eftir sömu teikningu.
JÖKULL No. 71, 2021 91