Jökull


Jökull - 01.01.2021, Blaðsíða 127

Jökull - 01.01.2021, Blaðsíða 127
Jöklarannsóknir á Íslandi á fimmta áratugnum 1934 og árið 1938 höfðu þar orðið mikil tíðindi. Þá varð gífurlega stórt Skeiðarárhlaup. Það sást engin aska eða neitt óvenjulegt nema feiknalegar sprungur eða sigdæld og menn skildu ekki hvað hafði gerst. Á þessum árum var það mikil ráðgáta, hvert samband væri milli jökulhlaupa og eldgosa í Mýrdalsjökli og Vatnajökli. Vafi lék á því, hvað væri orsök og hvað afleiðing. Mjög lítið var vitað um dreifingu jarðhitans á Íslandi. Menn höfðu heyrt um landrekskenningu Al- freds Wegeners, en hún fékk ekki hljómgrunn meðal jarðvísindamanna vegna þess, að ekki voru þekktir kraftar, sem gætu flutt til heilu meginlöndin. Ferð í Grímsvötn 1942 Við Steinþór skipulögðum skíðaleiðangur á Vatnajök- ul 1942 og var Steinþór fararstjóri. Markmiðið var ekki aðeins að kanna og mæla Grímsvötn milli gosa, heldur einnig að prófa gagnsemi skíðaíþróttarinnar í meirháttar ferð á jökli. Fjórir menn voru í leiðangr- inum. Steinþór, ég og Franz bróðir minn og Sveinn Þórðarson, þá nýbakaður doktor í eðlisfræði. Þá hafði enginn maður komið í Grímsvötn frá 1938, en það vissum við ekki þá. Af slíku voru litlar fréttir. Það voru nánast engir í slíkum ferðum á þeim árum. Þetta var það mikið fyrirtæki og mikil óvissa. Við vorum þá búnir að ganga á flest fjöll hérna í nágrenninu í nokk- ur ár við allskonar aðstæður og langaði til að sjá hvað skíðaíþróttin dygði á jöklana. Við vorum allir skíða- menn af lífi og sál. Á þessum tíma var ekki hægt að komast lengra á bíl en austur að Lómagnúpi. Áætlunarbíllinn fór ekki lengra en að Kirkjubæjarklaustri en þaðan fengu leiðangursmenn vörubíl til að flytja sig að Kálfafelli í Fljótshverfi. Jöklaleiðangur varð að undirbúa mjög vel, því ekki þýddi að sjá eftir neinu þegar komið var austur fyrir fjall. Það var erfitt verk að koma mönnum og farangri að íslensku jöklunum, því landið var víð- ast ógreiðfært og vegalaust, og ekki var heldur hlaupið að því að komast upp á jökulröndina, upp á skriðjök- ul, sem venjulega var illa fær, sprunginn og fjandsam- legur. Það var fyrst þegar komið var að hjarnmörk- um, sem hagur skíðamannsins tók að vænkast en þá var alveg undir hælinn lagt hvernig færið og veðrið var. Til viðbótar því er svo hvernig menn fara að við að lifa af á jöklinum. Þá þarf áætlun að standast frá degi til dags. Í þessu vorum við náttúrlega byrjend- ur þó Steinþór væri ábyggilega reyndasti ferðamaður á Íslandi, en þegar þetta var hafði hann staðið fyrir landmælingum á öllu svæðinu fyrir norðan Hofsjökul, Sprengisand og Vatnajökul alveg austur í Lónsöræfi. Steinþór hafði byrjað sem aðstoðarmaður í mæl- ingaleiðöngrum danska hersins en þegar í ljós kom hvað í honum bjó hækkaði hann í tign og var falið að stjórna hermönnum í mælingum. Það var óþekkt í her að óbreyttur borgari stjórnaði herflokki. Stein- þór hafði venjulega tvo eða þrjá dáta sér til aðstoðar og þannig hafði hann skólast í einhverri þeirri hörð- ustu mælingarvinnu sem um getur. Það var á svæðinu milli Dyngjufjalla og Vatnajökuls, sem danski dátinn grét út af eintómri einsemd. Leiðangurinn lagði upp frá Kálfafelli í Fljótshverfi og fékk þar hesta og fylgdarmann upp að Síðujökli. Á þeim tíma var einn sleði í landinu sem vitað var um og hægt var að nota. Það var Nansen-sleði sem Guð- mundur frá Miðdal átti og hann fengum við lánaðan. Einnig fengum við lánaðan klyfjabúnað frá dönsku mælingamönnunum. Þetta ár kom enginn danskur leiðangur til Íslands af þeirri ástæðu að það var búið að hernema Danmörku. Steinþór vissi hvar útbúnað- urinn, sem Danirnir höfðu komið með, var geymdur. Það var uppi á geymslulofti hjá Vegagerð ríkisins með því fororði, að enginn mætti snerta á honum þar til næsti leiðangur kæmi. Samt fór svo, að við fórum með danskan klyfjabúnað, sem reyndist okkur vel. Fyrsti dagurinn fór í að komast upp að jöklinum og að selflytja farangurinn upp á Síðujökul. Það var mikið basl. Við komumst einn kílómetra fyrsta dag- inn og tjölduðum svo þar á klakanum. Síðan héldum við þessu áfram á ísnum og lentum í dimmviðri. Í ljós kom, þegar við loks komumst á snjó, að það voru miklar snjóöldur á jöklinum og færið mjög þungt. Það var ekki fyrr en við fórum framhjá Pálsfjalli, að færið fór að skána og þá fór okkur að líða vel. Þá var þetta orðið gaman. Við höfðum á tilfinningunni að við vær- um algjörlega einir í heiminum. Flugsamgöngur voru ekki komnar. Ef maður heyrði í flugvél varð að reikna með að það gæti verið þýsk njósnaflugvél. Við spek- úleruðum talsvert í þessum þýsku njósnaflugvélum og Sveinn var svo mikil prakkari, að hann bjó eitt sinn til stóran hakakross í snjóinn. Þegar ég komst að því, JÖKULL No. 71, 2021 125
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.