Jökull


Jökull - 01.01.2021, Blaðsíða 176

Jökull - 01.01.2021, Blaðsíða 176
Magnús Tumi Guðmundsson 2. Vorferð 1.–10. júní. Vegna Covid varð að aflýsa hefðbundinni vorferð enda engin leið að fylgja sótt- varnarreglum um fjarlægð milli fólks í skálum þar sem 1–2 sofa í hverri koju. Því varð það úr að Jarðvís- indastofnun og Veðurstofan fóru hvor með sinn hóp- inn (3 í öðrum og 6 í hinum) og unnu nauðsynleg- ar mælingar. Skálanefnd JÖRFÍ sendi lítinn hóp á fjallið helgina 5.–8. júní sem vann að lagfæringum og endurbótum, m.a. kringum rafstöðina. Í mæliferðinni var unnið að viðhaldi jarðskjálftamæla og GPS-tækja á Vatnajökli, gasmælingar unnar í Grímsvötnum og Bárðarbungu, íssjármælingar norðan Skaftárkatla og þyngdarmælingar gerðar á Bárðarbungu til að fylgj- ast þar með breytingum, sem hafa verið töluverðar í kjölfar öskjusigssins 2014–2015. Enginn snjóbíll fór í ferðina í þetta sinn. 3. Sporðamælingar. Mælingar voru með hefðbundnu sniði og truflanir vegna Covid voru litlar. Nokkuð var um að mælingafólk setti myndir af ferðum sínum á facebook síðu JÖRFÍ félaga og hefur sú nýbreytni mælst vel fyrir. Hrafnhildur Hannesdóttir hefur um- sjón með mælingunum. KJÖR NÝRRA HEIÐURSFÉLAGA Í tilefni af 70 ára afmæli félagsins voru kjörnir sjö ný- ir heiðursfélagar á aðalfundinum í febrúar. Þetta voru Ástvaldur Guðmundsson, Bryndís Brandsdóttir, Einar Gunnlaugsson, Indriði Aðalsteinsson, Leifur Jónsson, Hallsteinn Haraldsson og Bragi Skúlason. Þrjú þau fyrstnefndu eiga að baki áratuga starf innan JÖRFÍ og Bryndís hefur nú gengt starfi ritstjóra í 30 ár. Hinir fjórir eiga það sammerkt að hafa af mikilli samvisku- semi sinnt sporðamælingum í nokkra áratugi. ÚTGÁFA JÖKULS, FRÉTTABRÉF OG VEF- SÍÐA Jökull 69 kom út í mars, með sex ritrýndum fræði- greinum og 30 blaðsíðum af félagsefni. Unnið hef- ur verið að útgáfu 70. árgangs en í honum er mikið af efni sem tengist með einum eða öðrum hætti af- mæli félagsins. Vonast er til að það hefti fari í prent- smiðju á næstu dögum. Bóksala stúdenta sér sem fyrr um erlenda dreifingu. Tvö fréttabréf kom út á árinu en vegna frestana á fundahöldum og óvissu kom ekki fréttabréf ekki út í haust. Í staðinn var upplýsingum beint til félagsmanna gegnum tölvupóst og vefsíðu fé- lagsins. Hálfdán Ágústsson var ritstjóri fréttabréfsins eins og áður auk þess sem hann ásamt Kötlu Magnús- dóttur sjá um vefsíðuna. FUNDIR Eftir hefðbundin störf á aðalfundi í lok febrúar flutti Halldór Ólafsson erindi um fyrstu ár félagsins, ekki síst um brautryðjendastarf Jóns Eyþórssonar. Hall- dór fór sína fyrstu ferð á Vatnajökul vorið 1957, þegar gamli skálinn var byggður. Þegar kom að vorfundi í byrjun maí var komið á samkomubann. Því var brugðið á það ráð halda fund- inn í gegnum netið, og reið Joaquin Belart á vaðið með fyrirlestri um afkomu 14 íslenskra jökla á tímabilinu 1945–2017. Í áætlun um afmælisárið var gert ráð fyrir að hald- inn yrði veglegur haustfundur með nokkrum erindum sem kæmu með einum eða öðrum hætti að þróun jökla og jöklarannsókna hér á landi. Þar sem samkomubann hindraði fundahöld allt síðastliðið haust voru fundir haldnir gegnum Zoom. Þrír slíkir voru haldnir, 29. september, 20. október og 17. nóvember. Á fyrsta fundinum fjallaði Snævarr Guðmundsson um jökla- breytingar á Breiðamerkursandi. Í október flutti Helgi Björnsson erindi sem bar heitið Ísland undir jökli, þar sem hann fór yfir sögu íssjármælinga og helstu niður- stöður þeirra. Þann 17. nóvember sögðu Finnur Páls- son og Þorsteinn Þorsteinsson frá afkomu jökla á Ís- landi. Skemmst er frá að segja að fundirnir heppnuð- ust mjög vel, með yfir 100 þátttakendur á fyrsta fund- inum, um 150 þátttakendur á nóvember fundinum, en erindi Helga sprengdi alla skala, en þar komust 300 manns að en einhverjir urðu frá að hverfa. Tveir seinni fundirnir eru til á upptökum og getur fólk skoðað þær gegnum vefsíðu félagsins. ÁHRIF COVID Á STARF JÖRFÍ Vegna farsóttarinnar hefur margt raskast í starfi fé- lagsins. Í áætlun sem kynnt var í fréttabréfi í febrúar, var boðuð vegleg afmælisferð í Jökulheima um versl- unarmannahelgina, hefðbundin 13. septemberferð á sömu slóðir, veglegur haustfundur seinni hluta októ- ber um rannsóknir á jöklum landsins, opnun sérstakr- ar afmælissýningar í Perlunni í samstarfi við Náttúru- minjasafn Íslands laugardaginn 21. nóvember og að 174 JÖKULL No. 71, 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.