Jökull - 01.01.2021, Side 100
Guðrún Larsen og Þórdís Högnadóttir
2. mynd. Gosmökkur yfir húsaþökum í Vík í Mýrdal. Myndin var tekin neðan úr þorpinu þar sem ljósmyndarinn
Þorlákur Sverrisson bjó. Vel má hugsa sér að ljósmyndarinn hafi hraðað sér út á götu með myndavélina þegar
hann frétti hvað var að gerast og smellt af einni mynd. Gosmökkurinn er þó fjær en myndin gefur til kynna, sbr.
næstu mynd. Líklegast er að þessi mynd hafi verið tekin fyrsta gosdaginn, 12. október og sé fyrsta myndin sem
tekin var af Kötlugosinu 1918. Mökkurinn fyllir nánast myndflötinn og sjónlína í topp hans myndar 35–40◦
horn frá láréttu. Mökkurinn er svo stór að mat á hæð hans úr 20 km fjarlægð verður aldrei nákvæmt en gæti hafa
verið um 15 km y.s. Þá eru sterkar líkur á að þetta sé fyrsta ljósmyndin sem tekin hefur verið af sprengigosi í
jökli, í heiminum öllum. (Mynd ÞS-2-006, Þjóðminjasafn Íslands. Eign Jarðvísindastofnunar Háskólans (JH)).
– This photograph is most probably from October 12, the first day of the three week long Katla 1918 eruption.
The photo shows an ominous, grey cloud of steam and ash looming over the houses at Vík village. As taken, the
cloud appears to be advancing over the hill in the background, quite close to the photographer. This is not the
case as is obvious from the next photo (Figure 3). The photographer apparently went out onto the village street,
perhaps in front of his house, to catch this amazing sight before it disappeared. The angle from horizontal to
the cloud top is 35–40◦, providing a rough estimate of the height of the cloud visible on the image of 15 km a.s.l.
This is also very likely the first photograph in the world featuring an explosive, subglacial basaltic eruption.
(After plate ÞS-2-006, National Museum of Iceland. Property of Institute of Earth Sciences (IES)).
og klettabrúnir. Með samanburði við 3. mynd (með
auknum birtuskilum) sést að þarna glittir í skafla í
efstu brúnum Höttu. Einnig er ljóst að mökkurinn er
á bak við Höttu eins og á 3. mynd, en vofir ekki yfir
húsum í Vík eins og virðist á 2. mynd. Þetta er snilld-
arlega tekin mynd.
Á 3. mynd sést sami gosmökkur rísa hátt yfir
Höttu, dökkur neðst, líklega af ösku en ljósari ofantil.
Það er töluverður kraftur í gosinu, jaðar makkarins er
lóðréttur og hallast ekki undan vindi. Snjórinn í Höttu
liggur í sköflum, hvítur og hreinn að sjá – öskufall
hefur ekki svert skaflanna þegar myndin var tekin.
98 JÖKULL No. 71, 2021