Jökull - 01.01.2021, Síða 177
Jöklarannsóknafélag Íslands
síðustu afmælisárhátíð þann sama dag. Skemmst er
frá að segja að ekkert af þessu gekk eftir. Vegna sótt-
varnarreglna varð ekkert úr ferðunum og sama á við
um haustfundinn og árhátíðina. Gönguferðir GJÖRFÍ
í nágrenni Reykjavíkur féllu allar niður þetta árið af
sömu ástæðum. Þá varð að ráði að fresta afmælissýn-
ingu JÖRFÍ í Perlunni fram á næsta haust. Mótleik-
ur okkar var fjarfundaröðin sem getið var hér framar.
Sem betur fer hefur hún heppnast vel og er ætlunin að
halda henni áfram fram á vor.
SKÁLAMÁL
Þrátt fyrir takmarkanir ýmsar vegna Covid, tókst að
halda áætlun um viðhald og framkvæmdir í skálamál-
um. Farnar voru nokkrar hefðbundnar viðhaldsferðir
í Jökulheima. Flestallir gulir fletir voru málaðir og
blettað í brúna fleti. Borið var á pallinn. Vindrafstöð
tekin niður, farið með í viðgerð og sett upp aftur. Fyllt
var á olíutanka og farið með gas fyrir veturinn. Glugg-
ar pússaðir og málaðir að innan í báðum skálum.
Farnar voru þrjár vinnuferðir á Grímsfjall. Fyrsta
ferðin var í seinni hluta vorferðar, eða 5.–8. júní og
lagað hitakerfi í stóra skála, lakkað inni og málað það
sem hægt var úti. Önnur vinnuferð var farin 4.–6.
september þar sem dælu milli útitanks og innitanks
var komið í lag og áfyllingarkerfi uppfært. Einnig var
skipt um gluggahlera á vesturgafli stóra skála og suð-
urhliðar og málaðir gaflar allra skálanna. Rafstöðin
hafði bilað í október en þá tókst að flytja vélina í bæ-
inn til viðgerðar og bráðabirgðarafstöð komið fyrir í
staðinn. Fyrir vikið var þriðja vinnuferðin á árinu á
Grímsfjall í nóvember þar sem rafstöðin var sett upp
aftur eftir viðgerðina.
Nýr kamar var byggður fyrir styrk frá Uppbygg-
ingarsjóði Ferðamála og fluttur upp í Esjufjöll seint
í mars. Flutningarnir gengu að óskum og því tókst
að koma upp salernisaðstöðu á þessum stað sem nýt-
ur sérstakrar verndar svo að hægt sé að fylgjast þar
með gróðurframvindu. Nýi kamarinn mun hindra
mengun í framtíðinni, en unnið er að því að koma á
samstarfi við Björgunarfélag Hornafjarðar um reglu-
bundna tæmingu kamarsins og flutning á úrgangi til
förgunar í byggð.
BÍLAMÁL
Bifreið félagsins fór að venju dagsferð á Mýrdalsjök-
ul, óhefðbundna vorferð á Grímsfjall, dagsferð á Mýr-
dalsjökul um haustið og rafstöðvarferðina á Gríms-
fjall í nóvember sem farin var um Jökulheima. Einnig
studdi félagið við rannsóknir á skriðunni í Teigstung-
um við Tungnakvíslarjökul með því að senda bílinn í
ferð í Þórsmörk með búnað til mælinga á skriðunni.
Engar stórar bilanir komu upp á árinu en margvís-
legu viðhaldi var sinnt. Bíllinn hefur að mestu verið
geymdur í porti Landsvirkjunar við Völuteig. Enn er
ekkert fast í hendi varðandi endurnýjun á bílnum, en
ýmislegt hefur verið skoðað.
SAMSTARF VIÐ LANDSVIRKJUN OF NEYÐ-
ARLÍNUNA
Nýr samstarfssamingur var gerður við Landsvirkjun
til áranna 2020–2022. Samningur tryggir stuðning
við verkefni félagsins, einkum öfluga vorferð þar sem
haldið er uppi rannsóknum og ungu vísindafólki gef-
ast tækifæri til að kynnast rannsóknum á jöklum. Fé-
lagið á einnig samstarf við Neyðarlínuna um rekstur
rafstöðvar á Grímsfjalli. Félagið sinnir flutningum á
eldsneyti og ýmsu viðhaldi. Þessi samstarfsverkefni
eru mikilvæg og fjármagn sem fæst í gegnum sam-
starfið við þessa tvo aðila auðveldar félaginu að halda
úti öflugu rannsóknastarfi og að sinna viðhaldi á skál-
um félagins, einkum á Grímsfjalli.
LOKAORÐ
Óvenjulegt ár er að baki þar sem flestum áætlunum
var kollvarpað vegna aðstæðna sem félagið fékk ekki
við ráðið. Við því er ekkert að gera annað en að taka
aðstæðum með jafnaðargeði. Við bíðum eftir betri tíð
þegar tekist hefur að hafa veiruna undir með bólusetn-
ingum og samstöðu um skynsamlegar sóttvarnir. Fé-
lagið hefur því verið í hálfgerðu soféti frá því á vor-
dögum. Öðru hvoru hefur rofað til en jafnan þegar við
höfum búið okkur til ferðar hefur syrt að aftur. Þannig
var það í sumar þegar fyrir dyrum stóð að halda veg-
legar veislur í Jökulheimum. Sama á við um afmæl-
isdaginn í nóvember þegar allt var lokað. Við náum
vonandi að fara margar góðar ferðir í sumar og haust,
opna sýningu og halda þá afmælisveislu með gleði,
söng og dansi, eins og alla dreymir um.
Flutt á aðalfundi 23. febrúar, 2021.
Magnús Tumi Guðmundsson
JÖKULL No. 71, 2021 175