Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 7
SKOÐANAKÖNNUN
þegn. En ekki er annað sýnilegt,
en að það séu einkahagsmunir,
sem stjóma gerðum hans.
Þetta minnir á eitt af erfið-
ustu vandamálum nútímans, en
það eru hin djúptæku áhrif til
góðs eða ills, sem stjórnarvöld
hafa á fólkið og er þess eðlis.
að mjög fáir, sem fyrir þeim
verða, geta gert sé grein fyrir
þeim. Það er að sumu leyti vegna
þess, hve vandamál nútímans
eru flókin, að lýðskrumarar geta
orðið einræðisherrar, og sam-
vizkulausir eiginhyggjumenn
geta leitt heilar þjóðir út á glöt-
unar braut. Það er ekkert dug-
andi ráð við þessu nema mjög
aukin menntun og þekking. En
það ráð verður ekki tekið, með-
an um það bil helmingur mann-
kynsins er undir stjórn manna,
sem byggja vald sitt á því, að
viðhalda fáfræðinni. Ótímabært
lýðræði er ekkert töfralyf. Það
var reynt í Kína 1912, en leiddi
aðeins til stjórnleysis og borg-
arastyrjaldar, og að lokum til
kommúnísks einræðis. Ég hefði
óskað, að þessi könnun hefði
getað náð til landanna austan
járntjaldsins. En við verðum að-
eins að geta okkur til um, hvað
þar er að gerast.
*
Ef sú kynslóð, sem nú er að
ná fullorðinsaldri, á að taka
þátt í að bjarga mannkyninu,
verður að uppfylla mörg erfið
skilyrði. Fyrst og fremst verða
hinir eldri menn að lofa þeim
að lifa. Fólk á því aldursskeiði,
sem um er rætt í þessum grein-
um, fær enn sem komið er litlu
um þetta ráðið. Það verða óhjá-
kvæmilega eldri menn, sem
marka stefnuna. En ef ungu
mennimir fá að ná þroskaaldri,
þá mun sá tími koma, ef til vill
fyrr en seinna, að þeir láti til
sín taka að marki í heimsmál-
unum. Þeir þurfa þá að hafa
tvo eiginleika, sem erfitt er að
sameina. Annar þeirra er bjart-
sýni, en hinn skynsamlegt mat
á hættu. Eins og er virðist skort-
ur á bjartsýni meðal ungra Am-
eríkumanna. Ég held, að það
bezta, sem hægt væri að gera
fyrir mannkynið nú, væri að
efla skynsamlega bjartsýni hjá
unga fólkinu í Ameríku. En það
verður að vera bjartsýni, og
skynsamleg að auki. Þess er
vart að vænta, að mannkyn, þar
sem hinir bjartsýnu eru heimsk-
ir og hinir vitm bölsýnir, leysi
vandamál okkar. En jafnvel þó
að bæði vit og bjartsýni væri
fyrir hendi, yrðu þau ekki leyst
án fágætrar atorku og hug-
rekkis. Ef til vill mun hin brýna
börf kalla fram þessa eiginleika.
Slíkt hefur gerzt áður í sögu
mannkynsins, og við megum vel
vænta þess, að það gerist aftur.