Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 10

Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 10
8 ÚRVAL í íjárhagsörðugleikum hans. Hún fer í kvikmyndahús, þegar hún hefur efni á því og hvílir sig við að horfa á knattleiki, „jafnvel þegar mér leið- ist það". Hún hugsar sér að giftast og leggja jafnframt stund á dans. Þó að foreldrar hennar vilji sam- kvæmt landsvenju hafa hönd í bagga um mannsefni, þá er hún það sjálf- stæð, að hún fer stnu fram í því efni. Hún vonast til að stéttaskipt- ingin á Indlandi hverfi og trúflokk- arnir taki höndum saman. ÍÞað er eitthvað aflaga i heimi, sem skipt- ist í andvígar fylkingar. Hún er von- glöð og þokkafull stúlka. apan. Lífsviðhorf Goro Suma er mótað af styrjöld og ó- sigri. Þegar stríð- inu lauk, var hann í liðsfor- ingjaskóla. Þar var honum kennt að hata aðrar þjóðir, einkum Bandaríkjamenn og Breta, og tigna keisarann. Nú er hann nánast friðarsinni, til vinstri í stjórnmálum og sannfærður um, að keisarinn sé þrándur i götu lýð- ræðisins. „Aðeins sönn lýðræðisstjórn með sósialískan þingmeirihluta að baki sér getur fært Japönum frið." Suma telur hugsanlegt, að hann lifi það, að þriðja heimsstyrjöldin brjót- ist út. Til að hindra það, „ættum við að skipta um stjóm — því að sú, sem nú situr, er ekki annað en verkfæri Bandarikjamanna — og reka hlut- lausari og sjálfstæðari stjórnmála- stefnu. Við ættum einnig að koma á viðskipta- og menningartengslum við Kína og Sovétríkin." Hann er andvígur friðarsamningunum við Bandaríkin og fylgiríki þeirra. Hann er fylgjandi S.Þ. „sem hinum eina vettvangi, þar sem Bandaríkin og Sovétríkin geti ræðzt við", en rétt- lætir beitingu neitunarvaldsins, „því að án þess yrðu kommúnistarikin í minni hluta og borin ofurliði af hinni vestrænu ríkjasamsteypu". Kóreu- stríðið skoðar hann eingöngu sem „borgarastyrjöld milli þjóðernissinna og kommúnista". Herir S.Þ. hefðu ekki átt að blanda sér i það, og Japan ætti ekki að birgja þá að vistum. Þessi afstaða virðist hrein-kom- múnísk. Eftir vestrænum mælikvarða yrði Suma stimplaður sem dulbúinn kommúnisti. Þó að hann sé ritari í starfsmannafélagi háskólans og vinni að hagsmunum þess, er hann samt óflokksbundinn. Hann hefur andúð á skriffinnsku og játar að hafa alltaf átt í brösum við stjórn háskólans. Móðir hans er dáin. Um föður sinn segir hann: „Ég á ekki í neinum verulegum útistöðum við hann, því að ég er mjög lítið heima". Hann viðurkennir viðhorf föður síns, nema hann fordæmir dýrkun hans á keis- aranum og hershöfðingjum hans. Ef hann á í erfiðleikum, þá leitar hann ráða föður síns. Hann er trúlofaður, en gerir sér ekki miklar vonir um að geta gift sig í náinni framtíð, með sjö punda laun á mánuði. 1 sambandi við nám sitt í þjóðarétti segir hann: „Mér hefði þótt gaman að kynnast löggjöf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.