Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 22
20
TjTRVAL,
nokkur börn og veita þeim sama
uppeldi og hún fékk sjálf. Hún hef-
ur mjög ákveðnar skoðanir um kyn-
ferðismál: „Ungt fólk á að bíða,
þangað til það giftist — annars væri
hjónabandið þýðingarlaust".
Indland.
Ushkant Ladi-
vala lifir í stóru
landi, sem er rétt
að koma fyr-
ir sig fótunum.
Hann er snyrti-
legur til fara,
fyndinn í tilsvör-
um, mjög íhalds-
samur hvað snertir trúarbrögð, sið-
ferði og fjölskyldumál. Hann er auð-
ugur að persónulegum þokka og
sjálftrausti og virðist lifa lífinu án
þess að eiga við mörg vandamál að
stríða. Til skamms tíma tilheyrði
fjölskylda hans miðstéttinni, en nú
er hún orðin auðugri en gerist um
slíkt fólk. Þegar hann kvænist, læt-
ur hann tilfinningarnar ekki ráða
valinu. Heimili hans er búið nýtízku
húsgögnum og lýst með neon-ljósum,
sem hér er einkenni góðs viðskipta-
hagnaðar. Utan heimilis klæðist
hann að vestrænum hætti og ek-
ur í Morrisbíl. Það veldur hon-
um engrar furðu, að sjá heimilisleys-
ingjana sofa á mottum sínum innan
um gljáandi einkabifreiðar á bíla-
stæðunum. Þeir eru ekki annað en
eitt af vandamálum Indlands, — sem
hann telur, að séu kommúnismi,
Kashmir og hungursneyðir. Hann ber
litla virðingu fyrir landstjórninni og
S.Þ. „þangað til þær verða tilgangi
sínum trúar". Hann á margvísleg
áhugamál, les fræðandi tímarit, bæk-
ur um indverska heimspeki og hefur
lokið prófi í jarðfræði við háskólann
i Benares. Hann er hrifinn af Danny
Kaye, Abott og Costello, og allskonar
tónlist, austrænni og vestrænni. Hann
eyðir litlu, lifir eingöngu á jurta-
fæðu, eins og öll fjölskylda hans,
trúir einlæglega á atorku hinna ungu
indversku kaupsýslumanna, en er of
skynsamur til að vera allt of öruggur
um framtíðina. Hagsmunir fjölskyld-
unnar verða að ganga fyrir.
Brazilía.
Maria Luisa Pi-
gueiredo er dótt-
ir skurðlæknis í
Rio de Jameiro
og er tvítug að
aldri.
Þó að faðir
hennar sé aðeins
sæmilega efn-
um búinn, klæðir hún sig eins og auð-
mannsdóttir. Ástæðan til þess er sú
að foreldrar hennar lita ekki aðeins
á hana sem ástkæra einkadóttur,
heldur eiimig sem fasteign. Maria
verður að fá gott gjaforð, þ. e. a. s.
maður hennar verður að vera mikils-
metinn og auðugur.
Hún vinnur ekkert. Eina skylda
hennar er að krækja í þann tilvon-
andi. Venjulega eyðir hún deginum
þannig, að hún fer í enskutíma, síð-
an I sund og útreiðartúr og loks í
bíó. Hún les næstum eingöngu tizku-
blöð. Henni þykir gaman að ame-