Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 47
ORSAKALÖGMÁLIÐ OG EÐLISFRÆÐI NÚTlMANS
45
leiðsla, og virðast á henni ótal
smugur, en þær leiða ekki til
neins. Stungið hefur verið upp
á hvers konar tilfæringum, til
þess að mæla hve mikilli trufl-
un áreksturinn veldur; ef hún
væri kunn, væri óvissan úr sög-
unni. En ávallt kemur í ljós, að
hver ný fullkomnun mælitækj-
anna verður upphaf nýrrar ó-
vissu. Sá tími er liðinn, er menn
héldu að með nógu mikilli hug-
kvæmni og snilli væri unnt að
komast fram hjá því óvissu-
marki, er kvantafræðin setja
öllum mælingum; nú eru allir,
sem hafa kynnt sér þessi
mál, sannfærðir um að kvanta-
kenningin er sjálfri sér sam-
kvæm. Þegar um ályktanir
er að ræða, sem studdar eru af
rannsóknum, getum við ekki
valið og hafnað að eigin geð-
þótta.
„Þá það,“ kann lesandi þess-
ara lína að segja, „látum svo
vera, að ekki sé unnt að segja
fyrir um árekstur sameinda,
sökum þess að ekki er unnt að
ákveða stöðu og hraða sameind-
anna í senn nógu nákvæmlega.
En er þetta þá ekki einungis
dæmi um orsakir sem eru of
flóknar til þess að hægt sé að
rannsaka þær til hlítar, eins og
veðurspárnar til dæmis?“ Ég
skal játa, að þetta er ekki ólík-
leg skýring, og að ýmsir úr hópi
eðlisfræðinga munu henni sam-
þykkir. En fyrir mitt leyti held
ég ekki að þessi skoðun sé rétt.
Það er munur á orsökum sem
eru of flóknar til þess að við
getum rannsakað þær og or-
sökum sem fyrirfram er útilok-
að að unnt sé að rannsaka. I
vísindunum hefur sú regla stað-
ið óhögguð um langt skeið, að
forðast beri skýringar sem eru
þess eðlis, að ekki er unnt að
sannreyna þær.
Heimspekingar og fulltrúar
heilbrigðrar skynsemi hafa
stundum deilt á þessa reglu og
hefur deilan þá verið talin
standa milli tveggja ólíkra
hugsanavenja. Eg hygg að
það sé ekki rétt sjónar-
mið. Heimsmynd heilbrigðr-
ar skynsemi er skyld heims-
mynd vísindanna að því leyti,
að báðar eru reistar á at-
hugun á umheiminum, túlkun
þessara athugana og niðurröð-
un; munurinn er sá, að það sem
við köllum heilbrigða skynsemi
teygir rætur sínar óralangt aft-
ur í tímann, jafnvel aftur fyrir
þann tíma, er forfeður manns-
ins tóku á sig þá mynd er hann
hefur nú. Heilbrigð skynsemi er
forsöguleg vísindi, mikið af hug-
myndum hennar er enn í gildi,
á sama hátt og margt af upp-
finningum forsögulegrar tækni:
spjótið, plógurinn, eldurinn. Þótt
vísindalegt hugtak útrými öðru,
sem byggt var á heilbrigðri
skynsemi, er það sízt meiri saga
en þótt nýtt vísindalegt hugtak
komi í stað annars eldra, það
er aðeins eðlileg þróun, en ekk-
ert tilefni til gremju eða and-
varpa.