Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 8
6
■orval
ísrael.
Á grýttri hæð í
tsrael, á stað, sem
Jízrael nefnist,
býr Carmel Ab-
ramson. Hún er
21 árs gömul, gift
og á 1 barn. Hún
er í hópi ungra
landnema, sem
eru að brjótast áfram allslausir. Hún
rækir hlutverk sitt af einlægri holl-
ustu og skoðar það sem sjálfsögð
örlög. Frá annarra sjónarmiði er líf
hennar snautt og hrjúft, en fyrir
henni er það bæði auðugt og fagurt.
Hún er fædd í Tel Aviv, fór í bún-
aðarskóla, en hætti námi til að taka
þátt i hinni ólöglegu Haganah-hreyf-
ingu. Tók seinna þátt í stríðinu við
Araba.
Hún giftist hermanni, sem hún
hafði hjúkrað, og þau kusu af frjáls-
um vilja að setjast að í nýlendu, þar
sem allt varð að reisa frá grunni.
Það er samyrkjuþorp (kibbutz)*).
Ibúð hennar er eitt herbergi í verk-
smiðjugerðu húsi. Barnið er á barna-
heimili nýlendunnar, þar sem hún
vinnur. Þetta er ,,tsena“-skeiðið,
tími erfiðleikanna. Nýlendubúar halda
spart á matvöru, nýlendan sér fyr-
ir fatnaði. Carmel neitar eindregið
að nota fegurðarmeðul. Þau hjónin,
eins og flestir þama, hafa næstum
enga peninga undir höndum. Félags-
lífið er afar fábrotið. Nýlendubúar
koma saman og syngja við harmo-
*) Sjá greinina ..Samyrkjuþorp í ísrael''
í 2. hefti 11. árgangs.
nikuundirleik, hlusta á hljómleika I
eina viðtæki nýlendunnar og fara
stöku sinnum á bíó i borginni á troð-
fullum vörubíl.
Nýlenda Carmelar er með sam-
eignarskipulagi. Hún segir: 1 ný-
lendu okkar ríkir mikill einingar-
andi og ég á enga sérstaka vini. Ég
á eitt átrúnaðargoð — manninn minn.
Sem meðlimur nýlendunnar hef ég
orðið það, sem ég vildi verða. Eg
býst ekki við, að ég breytist hér
eftir."
Þó að hún búi við óblíð lífskjör
frumstæðrar nýlendu, talar hún af
sannfæringu og trúnaðartrausti, sem
fágætt er nú á dögum. „Stríð getur
skollið á hvenær sem er, en ég er
ekki mjög hrædd. Ég hef alltaf ver-
ið bjartsýn. Ef allir vildu lifa eins
og við, væru engar styrjaldir og meiri
hamingja."
Sýrland.
Fyrir norðan
Israel liggur Sýr-
land, sem fyrir
skömmu varð
sjálfstætt ríki.
Þjóðin er á öru
breytingastigi.
Burhan Jabri,
átján ára verk-
fræðinemi, er þátttakandi í þessum
breytingum. Hann er arabiskur
Múhammeðstrúarmaður, kominn af
miðlungs bændafólki. Hann gerir sér
grein fyrir því, að hann er þátttak-
andi í þeirri afar hröðu breytingu,
sem þjóð hans er að taka, er hún
segir skilið við fornar lífsvenjur og