Úrval - 01.04.1953, Síða 17
SKOÐANAKÖNNUN
15
<er flugstjóri að atvinnu og rækir
starf sitt vel og samvizkusamleg-a.
Stríðið olli þáttaskiptum í lífi hans.
Áður var hann fremur óánægður
bankastarfsmaður, en gerðist sjálf-
hoðaliði í flugher Braziliu, var þjálf-
aður í Bandaríkjunum, en var aldrei
sendur til orustu. Nú hefur hann
góð laun, en móðir hans vill ekki,
að hann leggi neitt til heimilisins,
stundum kaupir hann þó handa hermi
gjafir. Mest af tekjum hans fer til
fatakaupa. I-Iann er hrifinn af öllu
handarísku, veit ekkert um Evrópu,
og áhugi hans á stjórnmálum gæti
varla minni verið. Hann neytir ekki
einu sinni kosningaréttar síns. Hann
skemmtir sér af kappi og vinnur af
kappi. Hann álítur, að rétt sé að lifa
kynferðislífi áður en menn giftast, og
hýst ekki við að tilvonandi kona
hans verði hrein mey, og ætlar að
takmarka bameignir sínar við tvö,
því að fleiri börn mundu verða hon-
um til trafala. Fyrir utan safn af
skræpóttum hálsbindum, er hann
hreyknastur af 400 jazz-plötum, sem
harm á. Hann á hraðskreiðan enskan
híl og ekur til baðstrandarinnar, þeg-
ar hann á frí. Hann les litið annað
en bækur um flug, en fer að stað-
aldri í bíó. Hann hefur ekki áhuga
á glæpamyndum, en kýs að sjá hina
bjartari hlið lifsins. Walter hugs-
ar ekki fram i timann, líf hans
1 starfi og leik er eintómt sólskin
og skemmtun, en það kann að vera
skammgóður vermir. Hann segir að
mesti hamingjudagur ævi sinnar hafi
verið, þegar hann fæddist, og ef til
vill er það eðlilegt. Kætast meðan
kostur er, er öll hans heimspeki.
•Ja[>;ui.
Michiko Jin-
uma er 20 ára
gömul. Hún býr
skammt frá
Tokíó í stóru
timburhúsi, sem
er hitað upp
með viðarkol-
um. Þar er bæði
rafmagn og simi. Faðir hennar er
dómari og á miklar jarðeignir.
Hún biðst alltaf fyrir á undan
máltíðum fyrir framan Búdda líkn-
eski. Að öðru leyti iðkar hún fáa
trúarsiði Búddatrúarmanna. Hún á
9 klæðnaði, sem hún hefur gert eftir
eigin hugmynd, og auk þess kyrtla,
sem hún gengur í heima. Hún er
mjög samrýmd foreldrum sinum,
sem eru því fylgjandi, að hún gangi
í vestrænum klæðum. Hún notar
fegrunarmeðul.
Michiko fer þrisvar í viku í sauma-
skóla á gömlu reiðhjóli, því að fjöl-
skyldan á engan bíl. Hún vinnur
heimilisstörfin ásamt eldri systur
sinni. Þegar foreldrar hennar eru
gengnir til náða, teiknar hún kjóla
til miðnættis. Hún getur ekki sofið,
nema hún hafi áður rætt við for-
eldra sína um allt, sem henni liggur
á hjarta.
Michiko er vinsæl, hefur gaman
af íþróttum, fræðslukvikmyndum
og klassískri hljómlist. Hún hóf
skólanám 7 ára, og því lauk með
gagnfræðaprófi, er hún var 18 ára.
Á stríðsárunum vann hún í flugvéla-
verksmiðju. Hún hafði yndi af starf-