Úrval - 01.04.1953, Síða 27
KAKTUSINN OG LIRFAN
25
npp hvarvetna og áveituskurðir
voru grafnir upp að nýju. Árið
1938 framfleytti hið endur-
heimta land meðfram Moonie-
ánni hálfri milljón sauðfjár.
Örlítið bar á því eftir fyrstu
ár þessarar árangursríku her-
ferðar gegn þyrniperukaktusn-
um, að hann hyggði á gagnsókn,
og einstaka plöntur sjást enn
hér og þar, en engar líkur benda
til að hann geti nokkurntíma
aftur orðið sá vágestur sem
hann var einu sinni.
1 Boonarga, litlum járnbraut>
arbæ í vesturhluta Queenslands,
stendur bygging sem reist var
til minningar um sigurinn yfir
þyrniperukaktusnum. Hún heit-
ir Cactoblastis Memorial Hall,
í höfuðið á lirfunni sem sigur-
inn vann.
Endurfundir.
Gestur í kaffihúsi í Róm víkur sér að öðrum gesti og segir:
„Ef mér skjátlast ekki, þá hittumst við hér í fyrra?“
„Jæja? í>ekkið þér mig?“
„Ne-ei, ekki yður, en regnhlífina."
„En ég held ég hafi ekki verið með hana þá."
„Nei, en ég var með hana.“
— Dominica del Corriere.
★
Daun heimsins . . .
„Hvað er þetta, Roger, af hverju ertu svona raunamæddur?
Var ekki gaman í siglingunni ?“
„Jú, þakka þér fyrir, mjög gaman. En það er út af Jennífer."
„Kærustunni þinni? Hvað er að?"
„Jú, sjáðu til, ég skrifaði henni á hverjum degi meðan ég
T>ar að heiman, og nú er hún gift póstinum."
■—- Progrés-Dimanche.
★
A barnum.
Áhyggjufullur gestur settist við barinn, gaf þjóninum merki og
spurði i trúnaði: „Heyrðu, var ég hérna í gærkvöldi?"
„Ekki get ég neitað því," sagði þjónninn og brosti. „Það
mátti sjá minna grand í mat sinum."
„Og — segðu mér —• eyddi ég miklum peningum ?“
„Ekki laust við það. Mér þykir mikið, ef þér hafið ekki verið
fimm pundum fátækari þegar þér fóruð."
Áhyggjusvipurinn hvarf af andliti gestsins. „Það var gott,"
sagði hann og varpaði öndinni léttar. „Eg hélt ég hefði týnt
fimm pundum!" — Courier.
4