Úrval - 01.04.1953, Qupperneq 31
Hvers vegna kaupa menn klámrit?
Grein úr „Hörde Ni“,
eftir Börje Löfgren.
EF þér hafið ekki fundið það
sem þér leitið að á þessu
sviði, þá ættuð þér að reyna
að kaupa verulega djarfar
myndir beint frá Kaupmanna-
höfn. Viljið þér fá óritskoðað-
ar ljósmyndir? Sendið þá 10 kr.
í pósti .... Veruleikalýsingin,
sem verður umræðuefni dagsins.
Lesið játningar hinnar afvega-
leiddu sveitastúlku .... Nýjung
frá Ameríku! 52 naktar Holly-
woodtízkudömur, litmyndaðar í
heillandi stellingum. Öll serían
er spil ásamt jóker. Þér getið
spilað á hana allt frá „Löngu-
vitleysu" til ,,Kanasta“. Seld í
fallegum umbúðum .... Ægileg
lýsing á lífi gleðikvenna! Bók
fyrir þá, sem gera strangar
kröfur til raunsæis í lýsing-
um .. ..“
Þetta eru nokkrar auglýsing-
ar úr tveim tímaritum, sem ég
keypti af rælni í tóbaksbúð fyr-
ir nokkrum dögum. Flestir munu
hiklaust telja það sem hér er
auglýst til klámrita (porno-
grafi).
Almennt munu menn þykjast
kunna fullvel skil á því hvað sé
klámrit, en séu menn beðnir
að skilgreina orðið nákvæmlega,
er hætt við að mörgum vefjist
tunga um tönn. Segja má að
klámrit séu það prentað mál
(og myndir) sem framleitt er
með það fyrir augum að full-
nægja þörf lesendans (eða skoð-
andans) fyrir kynörvun. Þetta
geta verið blöð, bækur og tíma-
rit, eða þá myndir, t. d. svo-
nefndar franskar Ijósmyndir.
Nú á tímum má kannski bæta
því við að allajafna sé þessi
framleiðsla sneydd listrænu
gildi, og með því að sú skoð-
un er nú viðurkennd, að góður
listamaður hafi leyfi til að lýsa
hvaða fyrirbæri sem vera skal,
er því nú oftast bætt við skil-
greininguna á klámritum að
þau séu ekki gerð í alvarlegum
listrænum tilgangi. Góðar bók-
menntir teljum vér nútímamenn
ekki til klámrita jafnvel þótt
þær hafi kynæsandi áhrif á
sumt fólk.
Annað mál er, að verk rit-
höfunda, sem knúnir eru af list-
rænni þörf til vægðarlausrar
hreinskilni, eru oft lesin sem
klámrit, en það verður væntan-
lega að skrifast á reikning les-
andans en ekki höfundarins. 1
þessu sambandi má minna á