Úrval - 01.04.1953, Side 114
112
ÚRVAL
gleymdi dálitlu áríðandi og verð
upptekinn í dag. Verið þið sæl-
ar.“
Frú Stefansen var úti í bæ að
verzla, Stefansen bamakennari
var í skólanum. Stefansen lek-
tor þakkaði forsjóninni og lét
í flýti ofan í tvær stórar tösk-
ur, hripaði nokkur orð á miða
og hringdi á bíl.
Bílstjórinn sagði: ,,Það má
engu muna að við verðum ekki
of seinir.“ Stefansen lektor
komst með lestinni, sem seink-
aði um tuttugu mínútur. Hann
horfði kvíðinn út um gluggann,
út á götuna. En móðir hans kom
hvorki hlaupandi né í bíl. Hann
varpaði öndinni léttar, þegar
lestin rann út af stöðinni.
Símskeyti náði honum tveim
stundum seinna, en hann reif
það í tætlur og lét þær fljúga
út um gluggann og brosti.
Fyrir kraftaverk og með að-
stoð Sandbergs tókst honum að
fá landvistarleyfi og gjaldeyri
sama dag.
Snemma á þriðjudaginn lenti
hann á Kastrup, klukkan hálf
tvö á Le Bourget. Klukkan fimm
hafði hann með aðstoð sendi-
ráðsins ráðið sig til fréttastofu
einnar, fyrst um sinn í fremur
lítilf jörlega stöðu. Hann snæddi
miðdegisverð með Möller og
ungri, sænskri stúlku.
Það var ekki fyrr en klukkan
átta, að hann kom til Montmart-
re. Frú Dubois var einmitt að
aka fatlaða manniniun inn í
hjólastólnum.
Stefansen lektor staldraði við,
gekk síðan inn. Lucia sneri baki
að honum. María og Georgette
töluðu saman í hálfum hljóðum.
Svo komu þær auga á hann. Þær
gláptu á hann, hrópuðu síðan
eitthvað, hvað sem það nú var.
Lucia sneri sér snöggt við,
starði, stóð skyndilega upp og
þaut til hans. Fatlaði maðurinn
horfði á þau og hló lágt. Hristi
höfuðið. Jean, sem var að bera
glös á bakka, nam staðar, brosti
og hélt leiðar sinnar. Dubois,
sem stóð við afgreiðsluborðið,
horfði rannsakandi á þau, beit
á vörina, muldraði eitthvað. Frú
Dubois stóð í dyrunum og grét.
Stefansen lektor hélt utan um
Luciu. „Við förum,“ sagði hann
rólega.
„Já, já, ástin mín, við förum."
Þau gengu út á götuna, til
þess, sem verða vildi.
ö. B. þýddi.
TTTf ¥/"/4 T Ritstjóri: Glali ólafason, Leifsgötu 16. Af-
U 1\ r ./i L/ greiðsla Tjamargötu 4, pósthólf 365, Reykjavík.
Kemur út átta sinnum á ári. Verð kr. 10.00 hvert hefti í lausasölu.
Áskriftarverð 70 kr. á ári. Utanáskrift tímaritsins er: Urval, póst-
hóif 365, Reykjavík.
CTOEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.