Úrval - 01.09.1953, Page 9
Eftir lestur þessarar ^reinar er
engiun láandi þótt hann spyrji:
Er yfirvofandi —
Bylting á sviði kynlífs og œxlunar?
Heimild: „Science Digest" og „Det Rigtige".
ENN sem komið er munu til-
tölulega fáir líta á sæðingu
eða gervifrjóvgun sem náttúr-
legan hlut, og enn færri munu
telja hana ótvíræða framför —
að minnsta kosti ekki sé hún
notuð við menn.
En veruleikinn verður ekki
umflúinn. Það er hœgt að
framkvæma hana, og hún er
framkvæmd. Enginn getur því
hliðrar sér hjá því að taka af-
stöðu til hennar. Lögfræðingar
og prestar hafa þegar fengið í
hendur fjölmörg vandamál til
úrlausnar í þessu sambandi.
En gervifrjóvgun er í raun-
inni smámunir í samanburði
við þær nýjungar, sem á und-
anförnum árumhafakomiðfram
á sviði æxlunar. Það mun álit
flestra, sem til þekkja, að sá
árangur, sem líffræðingar og
læknar hafa náð á þessu sviði,
þoli samjöfnuð við kjarnorku-
sprengjuna, sem setti heiminn
á annan endann 1945.
En nú skulum við snúa okk-
ur að efninu: Það er tæknilega
ekkert því til fyrirstöðu, að
kona geti alið barn algerlega
af sjálfsdáðum, án þess að fá
til þess nokkuð frá karlmanni.
Slík fæðing nefnist meyjar-
fæðing.
Það er tæknilega ekkert því
til fyrirstöðu, að kona geti orð-
ið móðir tvö hundruð eða fleiri
barna — sem eru hold af henn-
ar holdi og blóð af hennar
blóði.
Það er tæknilega ekkert því
til fyrirstöðu að kona geti eign-
ast börn án þess að ganga með
þau og fæða þau — börn, sem
einnig eru hold af hennar
holdi og blóð af hennar blóði.
Það er tæknilega ekkert því
til fyrirstöðu, að maður, sem
er lifandi núna, geti orðið fað-
ir barna, sem fæðast eftir
hundrað ár — ef þá er einhver
kona reiðubúin að ala honum
þau börn, sem hann ætlar sér að
eignast.
Það kann að vera, að les-
andanum standi stuggur af
þessum framtíðarmöguleikum,
og vilji ekkert af þeim vita.
En hann getur eins vel neitað
tilveru kjarnorkusprengjunnar.
Og því þá ekki að horfast í augu
við staðreyndirnar og fræðast
ögn meira um þær?