Úrval - 01.09.1953, Qupperneq 11
BYLTING Á SVIÐI KYNLlFS OG ÆXLUNAR
9
frávik frá þeirri tölu ekki mik-
il. Konan á að jafnaði aðeins
eitt barn í einu, sem stafar af
því, að aðeins eitt egg losnar
úr eggjakerfinu í einu. Frjóvg-
ist það ekki á leiðinni niður,
skilst það út við næstu klæða-
föll.
En nú hafa menn sannreynt,
að með sérstökum hormóna-
gjöfum er hægt að framkalla
losun fleiri eggja í einu Ef
það væri gert við konu og egg-
in síðan frjóvguð, gæti hún
átt á hættu að eignast, ekki
tvíbura, þríbura eða fjórbura,
heldur kannski tólfbura eða
enn meira. Að sjálfsögðu væri
konan með öllu ófær um að
bera svo mörg börn undir
brjósti. En menn virðast, eft-
ir öllu að dæma, hafa fundið
ráð við því. Allt bendir til, að
hægt sé að frjóvga álitlegan
fjölda eggja í konu — taka þau
síðan burt með aðgerð og
græða þau í aðrar konur, eitt
í hverja. Það mætti t. d. taka
tólf frjóvguð egg úr konu og
græða þau í tólf konur, sem
síðan myndu á tilsettum tíma
ala tólf börn, sem þó væru öll
raunverulega börn eggjamóður-
innar.
Kínverskur líffræðingur, dr.
Chang Min-cheuh, sem starfar
í Bandaríkjunum, framkvæmdi
þessa aðgerð á kanínum og tók-
ust þær allar með ágætum.
Frjóvguð egg úr hvítri kanínu,
sem dr. Chang græddi í svart-
ar kanínur, urðu hvítir ungar,
sem seinna eignuðust sjálfir
hvíta unga.
Það eru þessar — og marg-
ar hliðstæðar — tilraunir, gerð-
ar í Bandaríkjunum og fleiri
löndum, sem vísindamenn
byggja á þá skoðun sína, að ein
kona geti orðið móðir mörg
hundruð barna. Og á sömu til-
raunum byggist sú skoðun, að
konan þurfi alls ekki að ala
sjálf börn sín. Hún þarf ekki
annað en láta frjóvga í sér eitt
eða fleiri egg (ef til vill aðeins
,,örva“ þau, ef hún óskar eftir
meyjarfæðingu) og láta síðan
græða þau í aðrar konur. Og
þá munu þær taka að sér
framhaldið: meðgönguna og
fæðinguna.
Hagnýtt gildi gæti þetta
haft fyrir konu, sem þráir að
eignast barn, en getur ekki
heilsunnar vegna gengið með
það og fætt það sjálf. Hún gæti
þá samið um það við aðra
hraustari konu, að hún taki að
sér að ganga með barnið og
fæða það fyrir hana.
í húsdýraræktinni getur
þetta haft geysilega þýðingu.
Dýrar veðhlaupahryssur geta
látið lélegar hryssur ganga með
folöld sín á meðan þær halda
áfram að vinna sigra á veð-
hlaupabrautunum.
Loks er sá möguleiki að karl-
menn geti eignast börn löngu
eftir dauða sinn — eða ef hann
hefur af slysni eða einhverjum
öðrum orsökum orðið ófrjór.
Þegar dr. Chang, sá sem fyrr