Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 42
40
tJRVAL.
staurinn. Bros lék um varir
hennar þegar skipunin var gef-
in og skotin riðu af. Andartaki
síðar var Hata Mari — dansmær
og þýzkur njósnari — ekki ann-
að en titrandi, blóði drifið lík.
En ráðgáta hins undarlega
perósnuleika hennar og hin ótta-
lega spurning — „var hún sek?“
— er enn óleyst og ósvarað.
Það eru til tvær útgáfur af
sögunni um uppruna Mata Hari.
Önnur er sú, sem hún sagði oft
sjálf þegar vínið hafði flætt
ríkulega. Þá sagði hún aðdáend-
um sínum, að hún væri fædd í
Indlandi í helgri borg í Malabar,
sem nefndist Jaffuapatam. Fað-
ir hennar hefði verið Bramíi og
móðir hennar bayadére: heilög
dansmær við musteri Siva.
Móðir hennar hefði dáið þeg-
ar Mata Hari fæddist, og prest-
arnir tekið hana til fósturs og
kjörið hana til þjónustu í must-
eri Kanda Swany. Þar hefði hún
lært hina fornu dansa Kama
Sutra.
Saga þessi er skáldleg og fög-
ur; en sannleikurinn er því mið-
ur ekki eins rómantískur.
Mata Hari fæddist í hollenzka
smábænum Leeuvarden 1876.
Faðir hennar var kunnur og vel
metinn frísneskur kaupmaður
og móðir hennar af auðugri hol-
lenzkri aðalsætt. Mata Hari var
skírð Gertrude Marguerite og við
andlát móður sinnar var hún
send í klaustur og þar hlaut hún
þá menntim, sem faðir hennar
taldi hæfa einkabarni sínu.
Þegar Marguerite var tæpra
19 ára og dvaldist í sumarleyfi
hjá föður sínum, hitti hún liðs-
foringja af skozkum ættum, sem
stjórnaði nýlenduhersveitum á
Java. Hún varð ástfangin af
honum, og af því að hann var
samboðinn henni á allan hátt,
þótt hann væri allmiklu eldri,
samþykkti faðirinn ráðahag
þeirra.
Þau voru gefin saman í Amst-
erdam árið 1895. Eftir unaðs-
lega hveitibrauðsdaga í Wies-
baden settust þau að um kyrrt
á heimili sínu. En það átti ekki
fyrir Marguerite að liggja, að
njóta hamingju í hjónabandi.
Höfuðsmaðurinn var aftur
kvaddur til herþjónustu á Java
— og það næsta sem við heyr-
um um hina ungu konu, er sú
mikla athygli, er hin óvenjulega
fegurð hennar vekur meðal
fólksins þar eystra.
En þar dynur ógæfan yfir
hana: innfædd barnafóstra byrl-
ar syni hennar eitur. Sambúð
hjónanna fór smám saman
versnandi, og þar kom að lok-
um, að höfuðsmaðurinn krafð-
ist skilnaðar. Hann var veittur
í Amsterdam, þar sem konan
hafði leitað hælis.
Marguerite var nú f rjáls aftur,
og næst hittum við hana í París
þar sem hún varð dansmærin
Mata Hari.
Og hér kemur vandamál fyrir
sálfræðinga eða þá, sem trúa á