Úrval - 01.09.1953, Síða 58

Úrval - 01.09.1953, Síða 58
56 tTRVAL I tvö ár stritaði hinn ungi innflytjandi við teikniborð og rennibekki, og á meðan gekk á sjóð og tiltrú stuðningsmanna hans. En eitt sinn er hann var á leiðinni til Washington með járnbrautarlest á fund, sem átti að ákveða hvort halda skyldi áfram tilraunun- um eða ekki, komst hann að endanlegri niðurstöðu. I stað pappamótsins yrðu að koma mót úr hörðum málmi, er kæmu í snögga snertingu við bráðna málmblöndu, sem letrið mótað- ist úr. Tvö ár liðu í viðbót, og á þeim tíma urðu miklar framfarir. TJtgefendur New York-blaðsins „Tribune", „Washington Post“ og fleiri útgáfufyrirtækja sáu fram á góðan árangur tilrauna Mergenthalers og keyptu hluti í fyrirtækinu. Tíu árum eftir að þeir Cleph- ane hittust fyrst, settist Merg- enthaler eins og áður segir við „stjórnvölinn" á verkfæri, sem var það lengsta skref, sem mað- urinn hafði á þeim tíma stigið í þá átt að skapa „skynsemi“ gædda vél. Hver einstakur hnappur á SO-stafa „borði“ vél- arinnar, er líktist mest ritvélar- borði, var í sambandi við lóð- rétta rennu fulla af stafamót- um, er hrundu niður þegar stjórnandi vélarinnar studdi á hnappana og mynduðu línu á lengd við blaðadálks breidd. Stafamótalínan fór svo inn í vélina og lagðist að móti er í var rifa af sömu lengd og þykkt og línan átti að vera, en bráð- inn steypumálmur spýttist gegn- um rifuna og fyllti stafamótin og rifuna; var þá fengin letur- lína af réttri lengd, hæð og breidd. Þegar línan hafði steypzt, tók þar til gerð lyfta við stafamótunum og lyfti þeim upp fyrir efra opið á rennunum, en þar runnu þær eftir ás með skerðingum, er samsvöruðu tönnum og skörðum á mótunum, svo að hvert féll í sína rennu. Lína eftir línu steyptist á þenn- an hátt af miklum flýti. Kostirnir við Linotypevéíina voru ekki aðeins stórkostlegur vinnusparnaður, heldur leiddi líka af henni að hægt var að leggja niður langar raðir af setjarapúltum og mörg tonn af slitnu letri. I jafnstóru húsnæði og þurfti við setningu á 8 síðna dagblaði, var nú hægt að setja tíu sinnum stærra blað. Blaðið „Tribune" var bráðlega búið að koma upp hjá sér 12 Linotype- vélum og önnur blöð höfðu bráð- lega sent pantanir á 100 vélum. Byltingin var hafin. I byrjun virtist vélin ætla að valda vinnudeilum. Verkföll stöðvuðu uppsetningu á vélum. Formælandi samtaka prentara í New York staðhæfði, að „tæki þetta myndi svifta prentara 90% af atvinnu þeirra.“ Spádómur þessi var hrakinn á eftirminnilegan hátt. Brátt færðist svo mikill vöxtur í prentiðnina, að fleiri prentarar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.