Úrval - 01.09.1953, Page 67

Úrval - 01.09.1953, Page 67
HIN FURÐULEGU AUGU FAKlRSINS 65 yfir nösunum, svo að hann gæti andað. „Jæja, vinur minn,“ sagði læknirinn, ,,nú getið þér hjólað um borgina eins mikið og þér viljið. En ég mundi fara varlega í umferðinni, ef ég væri í yðar sporum.“ „Eg er yður rnjög þakklátur, læknir,“ sagði Kuda Bux. Hann reis á fætur, hneigði sig fyrir lækninum og hjúkrunarkonunni og gekk til dyranna. „Þér skul- uð ekki hafa áhyggjur út af um- ferðinni. Ég sé ágætlega.“ Áður en læknirinn hafði áttað sig, var maðurinn horfinn. Hann gekk hratt eftir þröngum sjúkrahúsganginum og niður stigann, og loks út um aðaldym- ar, út í sólskinið. I garðinum stóð reiðhjól hans með tveim stórum auglýsingaspjöldum, sem á var letrað: Kuda Bux, maðurinn sem sér án þess að nota augun. Sýnir í kvöld, klukkan 7,30 í fjölleikaliúsinu. Blaðamaður nokkur beið hjá hjólinu, ennfremur leikhússtjór- inn, feitur maður með harðkúlu- hatt. Nokkrir sjúklingar stóðu á svölum sjúkrahússins og horfðu þöglir á það sem gerðist. Kuda Bux kastaði kveðju á þá sem biðu, skýrði blaðamannin- um frá því sem læknirinn hafði gert, sté á bak reiðhjólinu og hjólaði inn í umferðaþvöguna. Það var einkennileg sjón að sjá þennan bláklædda hjólreiða- mann með sárabindi fyrir and- litinu. Brátt var hópur af strák- um farinn að elta hann. Vegfar- endur staðnæmdust og horfðu steinhissa á þetta furðuverk. Öttaslegnir bílstjórar viku til hliðar, og margir hægðu ferð- ina og héldu á eftir honum, þannig að innan skamms hafði myndast löng fylking. Alltaf fjölgaði börnunum sem eltu hann. Lögregluþjónar á gatna- mótum gerðu litlar tilraunir til að stöðva hann, en hann hló einungis, veifaði til þeirra og hjólaði áfram. Um kvöldið voru öll sæti í fjölleikahúsinu uppseld. Þessi lýsing á komu Kuda Bux til Manchester í Englandi gæti átt við margar aðrar borg- ir og bæi, sem hann heimsótti á ferðalagi sínu um landið. Að- ferð hans var næstum alltaf eins, og vakti ávallt stórkost- lega athygli. Og það sem var meira um vert: Læknastéttin fór að fá áhuga á fyrirbrigð- inu. Þrír frægir læknar tóku að sér að rannsaka Kuda Bux í London, þegar hann hafði lokið sýningarferð sinni. Þeir voru: Edward Andrade, prófessor í eðlisfræði við Lundúnaháskóla; dr. I. G. Porter Phillips, for- stöðumaður Bethlehem Royal Hospital og dr. C. Jennings Marshall, skurðlæknir við Char- ing Cross sjúkrahúsið. Þessir þrír menn rannsökuðu Kuda Bux eins nákvæmlega og þeir höfðu vit á. Þeir lögðu deig
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.