Úrval - 01.09.1953, Page 101

Úrval - 01.09.1953, Page 101
Á KROSSGÖTUM 09 Slíkt og þvílíkt hafði aldrei komið fyrir hann áður. Það var þetta kvöld sem það byrjaði. Hann hafði það á til- finningunni að þannig mundi það verða ævina á enda. Nú, þegar hann var orðinn seytján ára og hugsaði til bernsku sinn- ar, sá hann fyrir sér hinar klaufalegu og misheppnuðu til- raunir hennar, tilraunir sem voru sprottnar af misskilningi og hiki og af djúpri óljósri eðl- ishvöt: alla matardiskana, sem hún hafði laumað til hans, öll þau skipti, þegar hún hafði reynt að bjarga honum undan refsingu, hvort sem hún var nú verðskulduð eða óverðskulduð, réttlát eða ranglát; ópersónuleg var hún að minnsta kosti alltaf, maðurinn og drengurinn litu á hana sem eitthvað eðlilegt og ó- hjákvæmilegt, allt til þess er hún gekk á milli og gaf henni nýjan blæ, nýjan lit. Annað veifið fannst honum hann verða að kalla hana á ein- tal og tala um þetta við hana. Að hann yrði að segja henni sannleikann sem hún yrði neydd til að leyna fyrir manninum. Hann ætlaði að segja henni frá því í laumi, það átti að vera einskonar leynileg borg- un fyrir alla matardiskana, sem hann hafði ekki langað 1: Hann segist hafa alið upp guð- lastara og vanþakkláta mann- eskju í húsi sínu. En ég ætla að hætta á að þú segir hon- um hvað hann hefur gert í raun og veru. Hann hefur hýst negra, og hann hefur klætt hann og fætt og alið hann upp sem sinn eigin son. Því að hún hafði alltaf verið honum góð. En maðurinn var harður, réttlátur og ónærgætinn og beið aðeins eftir því að hann hegðaði sér svona eða svona og tæki síðan við umbun sinni eða hegningu. Hann gat treyst viðbrögðum mannsins og maðurinn gat treyst viðbrögðum hans. Það var konan, sem gerði allt flókið, með hinni kvenlegu hneigð sinni til hins dularfulla og löngun til að gefa hinum sjálfsagðasta og saklausasta verknaði blæ banns og syndar. Bak við lausa fjöl í veggnum í þakherberginu hans geymdi hún smápeninga í blekbyttu. Það var ekki mikil upphæð. Þegar hann var lítill drengur hafði hún sýnt honum felustað- inn, með ákafri og pukurslegri varkárni barns að leik. Það var hún sem treysti honum, krafð- ist að fá að treysta homun á sama hátt og hún krafðist þess að hann borðaði. Krafðist sam- særis, krafðist launungar, gerði allt að pukri sem ekki þurfti að vera það. # Hann tók reipið rólega út úr felustaðnum. Það var hægt að festa annan endann í lykkju við gluggann. Nú tók það enga stund að komast upp eða nið-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.