Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Side 13
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 8 2
LÆKNAblaðið/Fylgirit 82 2015/101 13
E 14 Sumarexem: Framleiðsla á ofnæmisvökum í skordýrafrumum
með Bac-to-Bac SUMOstar próteintjáningarkerfi
Sara Björk Stefánsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Vilhjálmur Svansson, Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
sbs27@hi.is
Inngangur: Sumarexem er húðofnæmi í hestum sem orsakast af biti
smámýs (Culicoides spp.) sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins er há
í útfluttum hrossum. Ofnæmisvakarnir hafa verið tjáðir í bakteríum og
hreinsaðir. Líka þarf að framleiða ofnæmisvakana á upprunalegu formi,
þ.e. í skordýrafrumum. Suma vaka hefur reynst erfitt að hreinsa eftir
tjáningu í Bac-to-Bac baculoveirutjáningarkerfinu. SUMOstar viðbót
við Bac-to-Bac er hönnuð til þess að auka stöðugleika og leysanleika
próteina fyrir hreinsun úr skordýrafrumum. Markmið rannsóknarinnar
er að tjá fjóra ofnæmisvaka; Culn1,Culn2, Culn4 og Culo3 með Bac-to-
Bac SUMOstar próteintjáningarkerfinu.
Efniviður og aðferðir: Endurraðaðar baculoveirur (rBac-veirur) fram-
leiddar í Bac-to-Bac Baculoveirutjáningarkerfi með pIsecSUMOstar
vektor og rBac-veirur framleiddar í Sf-9 skordýrafrumum. Endurröðuð
his-merkt prótein framleidd í High-5 skordýrafrumum og hreinsuð með
His nikkel sækni hlaupi. Tjáning, framleiðsla og hreinsuð prótein voru
prófuð í coomassie litun og ónæmisþrykki.
Niðurstöður: Ofnæmisvakagenin Culn1, Culn2, Culn4 og Culo3 voru
mögnuð upp án eigin seytiraðar, sett inná pI-secSUMOstar vektor og
búin til bacmíð. Framleiddar voru endurraðaðar baculoveirur með
öllum ofnæmisvökunum. Culn2 og Culn4 rBac-veirur voru klónaðar
og magnframleiddar. Ofnæmisvakarnir framleiddir í High-5 skordýra-
frumum og hreinsaðir úr frumubotnfalli. Culn4 var einnig hreinsað
úr ætisfloti sýktra frumna. Betri heimtur eru af próteini eftir hreinsun
með SUMOstar en án þess og auðveldara að hreinsa úr floti. SUMOstar
prótein og His-hali hafa verið klippt af hreinsuðu Culn4 með SUMOstar
próteasa.
Ályktanir: Bac-to-Bac SUMOstar-samrunapróteintjáning getur auð-
veldað hreinsun próteina á náttúrulegu formi úr skordýrafrumum t.d.
þegar his-hali er ekki aðgengilegur eftir hefðbundna tjáningu í Bac-to-
Bac kerfinu.
E 15 Sumarexem: Bólusetning í eitla með ofnæmisvökum í alum
eða alum og Monophosphoryl Lipid A
Sigríður Jónsdóttir1, Eliane Marti2, Vilhjálmur Svansson1, Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir1
1Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, 2dýrasjúkdóma-
deild Háskólans í Bern
sij9@hi.is
Inngangur: Sumarexem er IgE miðlað ofnæmi í hestum orsakað af
biti smámýs (Culicoides spp.). Sjúkdómurinn er ekki vandamál hér
því flugan lifir ekki á Íslandi, en er algengur hjá útfluttum íslenskum
hestum. Við höfum einangrað ofnæmisvakagenin úr smámýi, tjáð í E.
coli og hreinsað próteinin. Markmiðið er að bera saman ónæmisglæða til
að nota í bólusetningu gegn sumarexemi.
Efniviður og aðferðir: Ofnæmisvakarnir; rCuln3, 4, 8 og 10 voru fram-
leiddir í E. coli og hreinsaðir. Tólf hestar voru bólusettir þrisvar sinnum
með fjórum ofnæmisvökum (10 µg) í eitla með þriggja vikna millibili.
Sex hestar fengu ofnæmisvakana í alum og sex í blöndu af alum og MPL.
Sermi var safnað fyrir mótefnamælingar í ónæmisþrykki og elísuprófi.
Niðurstöður: Bólusetning í eitla með ofnæmisvökum bæði í alum og
blöndu af alum og MPL ræsti sterkt sérvirkt IgG mótefnasvar, aðal-
lega IgG1og IgG4/7 undirflokka en mun minna IgG5 og IgG(T). Einnig
fékkst sérvirkt IgA mótefnasvar gegn öllum fjórum ofnæmisvökunum.
Sérvirkt IgE var ekki greinanlegt og hestarnir voru neikvæðir í húðprófi.
Munur í mótefnasvörun milli ónæmisglæðahópa var ekki marktækur.
Ályktanir: Bólusetning í eitla með litlu magni af hreinum ofnæmisvök-
um bæði í alum og alum/MPL ræsti sterkt IgG1 og IgG4/7 mótefnasvar
en ekkert IgE. Sem bendir til Th1 miðlaðs svars. En verið er að vinna úr
boðefnasýnum og athuga hvort IgG mótefnin geti hindrað bindingu IgE
úr sumarexemhestum. Ef þær niðurstöður sýna einnig Th1 miðlað svar
mætti nota alum í frekari þróun á ónæmismeðferð gegn sumarexemi.
E 16 Sumarexem: Myndun á sértæku mótefnasvari eftir
meðhöndlun um munn með byggi sem tjáir ofnæmisvaka
Sigríður Jónsdóttir1, Sara Björk Stefánsdóttir1, Vilhjálmur Svansson1, Eliane Marti2,
Einar Mäntylä3, Jón Már Björnsson3, Auður Magnúsdóttir3, Ómar Gústafsson3,
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir1
1Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, 2dýrasjúkdómadeild Háskólans í Bern,
3ORF Líftækni
sibbath@hi.is
Inngangur: Sumarexem er IgE miðlað húðofnæmi í hestum orsakað af
biti smámýs (Culicoides spp.) sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins
er mjög há í útfluttum íslenskum hestum. Ofnæmisvakarnir sem valda
exeminu hafa verið einangraðir og tjáðir. Ójafnvægi milli Th1, Th2 og
T-stýrifruma virðist vera undirliggjandi orsök exemsins og því ætti að
vera hægt að þróa ónæmismeðferð með örvun á Th1 og T-stýrifrumum.
Markmið verkefnisins er að tjá ofnæmisvaka í byggi til að nota í
ónæmismeðferð um munn.
Efniviður og aðferðir: Ofnæmisvakinn Culn2 var tjáður í byggi með
Orfeustækni. Tveir hestar fengu sex 50 gr skammta af möluðu Culn2
byggi uppleystu í saltvatni. Alls 350 gr með 35 mg af rCuln2 yfir fjögurra
mánaða tímabil. Tveir samanburðarhestar fengu sömu meðhöndlun
með blöndu úr óbreyttu byggi. Notuð voru sérhönnuð hol beislismél
ítrekað fyllt með byggblöndu sem hestarnir höfðu upp í sér í 3-5 klst
meðhöndlunardagana. Tekin voru reglulega blóð og munnvatnssýni og
mótefnasvar prófað í ónæmisblotti og elísuprófi.
Niðurstöður: Við höfum tjáð í byggi ofnæmisvakann Culn2, hýal-
úronidasa sem er upprunninn úr munnvatnskirtlum smámýsins C.
nubeculosus. Hestar sem voru meðhöndlaðir um munn með Culn2 bygg-
mjölsblöndu mynduðu mótefnasvar í blóði og munnvatni gegn Culn2
tjáðu í E. coli og í skordýrafrumum. Mótefnasvarið var aðallega IgG4/7
og IgG1 auk IgA í munnvatni. IgG5 og IgG6 var var ekki mælanlegt og
ekkert IgE.
Ályktanir: Það tókst að mynda sérvirkt mótefnasvar í hestum með
byggi sem tjáir ofnæmisvaka. Vonast er til að hægt verði að nota þessa
aðferð í ónæmismeðferð á hestum með sumarexem.
E 17 Epidemiology of mental wellbeing: A reliable measurement for
measuring mental wellbeing in Iceland
Dóra G. Guðmundsdóttir1,2,3, Sarah Stewart-Brown4, Daníel Þór Ólason6, Stefán H.
Jónsson1,2, Unnur A. Valdimarsdóttir1,5, Arna Hauksdóttir1
1Centre of Public Health Sciences, University of Iceland, 2The Directorate of Health in
Iceland, 3Well-being Institute, University of Cambridge, 4Warwick University, 5Department of
Epidemiology, Harvard School of Public Health, 6Faculty of Psychology, University of Iceland
dora@publichealth.is
Introduction: The World health Organisation (WHO) has emphasised
the importance of measuring population wellbeing. The Short Warwick-