Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2011/97 37
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 8 2
complexes can form nano-sized aggregates, but these aggregates are
usually not stable. The aim is to formulate stable nanoparticles utilizing
sulfobutyl-β-cyclodextrin and chitosan.
Methods and data: The formation of nanoparticles at pH 4 was mo-
nitored by UV-VIS spectrometry operated at 700 nm. Stability of the
nanoparticles was followed by DLS combined with viscosity measure-
ments and under different conditions: upon storage, upon dilution, at
elevated temperatures and upon salt addition. The effect of media pH
on the formation and stability of the nanoparticles was also tested. The
nanoparticles were also detected by TEM. Release of hydrocortisone
from the nanoparticles was studied by permeation.
Results: The nanoparticles formed had diameter between 100-200 nm.
The composition of the nanoparticles were estimated. A method for as-
sessing the stability of the nanoparticles was designed.
Conclusions: The nanoparticles are stable, except under basic condi-
tions or at high salt concentration.
E 93 Heilsufar íbúa á hjúkrunarheimilum sem eru með sykursýki
Ingibjörg Hjaltadóttir1, Árún Kristín Sigurðardóttir2
1Flæðissviði Landspítala, 2hjúkrunarfræðideild, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
inghj@hi.is
Inngangur: Sjúkdómabyrði og lyfjanotkun aldraðra sem eru með sykur-
sýki er oft mikil og sjúkdómurinn er áhættu þáttur varðandi flutning
á hjúkrunarheimili. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða algengi
sykursýki á íslenskum hjúkrunarheimilum árið 2012 og gera samanburð
á heilsufari, færni, lyfjanotkun og sjúkdómsgreiningum íbúa með eða án
sjúkdómsgreiningarinnar sykursýki.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn þar sem skoðuð voru
Minimum Data Set möt 2337 íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum.
Niðurstöður: Hlutfall kvenna var 65,5% og meðalaldur var 84,7 (sf. 8,2).
Meira var um húðvandamál hjá þeim sem voru með sykursýki, þeir
notuðu fleiri lyf, vitræn geta var betri og þátttaka í virkni var meiri. Þeir
sem voru með sykursýki voru frekar með háþrýsting, hjartasjúkdóm
vegna blóðþurrðar, heilaáfall, nýrnabilun, oflæti/þunglyndi, sjónukvilla
vegna sykursýki (retinopathy) og aflimun en voru síður með kvíðarösk-
un, Alzheimer sjúkdóm og beingisnun.
Ályktanir: Íbúar á hjúkrunarheimilum sem eru með sykursýki eru
betur á sig komnir andlega og eru yngri en aðrir íbúar, en hins vegar
getur meðferð þeirra verið flókin og áherslur í meðferð önnur en hjá
yngra fólki. Því er mikilvægt er að tryggja að starfsfólk hafi þekkingu á
hvernig best er að meðhöndla sykursýki hjá öldruðum einstaklingum.
E 94 Árangur kransæðahjáveituaðgerða hjá sjúklingum með
sykursýki
Jónas A. Aðalsteinsson1, Tómas A. Axelsson1, Daði Helgason1, Linda Ó.
Árnadóttir1, Hera Jóhannesdóttir1, Arnar Geirsson3, Karl Andersen1,2, Tómas
Guðbjartsson1,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2hjartadeild, 3hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala
jaa6@hi.is
Inngangur: Sykursýki er einn af helstu áhættuþáttum kransæðasjúk-
dóms. Sykursjúkir einstaklingar þróa gjarnan þriggja æða kransæða-
sjúkdóm sem er í flestum tilvikum meðhöndlaður með kransæðahjá-
veituaðgerð. Í þessari rannsókn voru könnuð áhrif sykursýkiá snemm-
komna fylgikvilla kransæðahjáveituaðgerða.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum sjúklingum sem
gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala á árunum 2001-
2012. Af 1626 sjúklingum voru 261 greindir með sykursýki (16%) og
voru þeir bornir saman við 1365 sjúklinga án sykursýki. Forspárþættir
fylgikvilla og dauða innan 30 daga voru metnir með aðhvarfsgreiningu.
Niðurstöður: Aldur, kyn, útbreiðsla kransæðasjúkdóms og EuroSCORE
voru sambærileg í báðum hópum, einnig hlutfall hjáveituaðgerða á slá-
andi hjarta (21%). Sjúklingar með sykursýki höfðu hærri líkamsþyngd-
arstuðul (30 á móti 28 kg/m2, p<0,01) og voru oftar með háþrýsting (82%
á móti 60%, p<0,001) og gaukulsíunarhraða undir 60 ml/mín/1,73 m2
(22% á móti 15%, p=0,01). Auk þess var aðgerðartími þeirra 16 mín lengri
(p<0,001). Tíðni djúpra bringubeinssýkinga, heilaáfalls og hjartadreps
var sambærileg í báðum hópum. Bráður nýrnaskaði var metinn sam-
kvæmt RIFLE-skilmerkjum og voru sykursýkissjúklingar oftar í RISK-
flokki (14% á móti 9%, p=0,02) og FAILURE-flokki (2% á móti 0,5%,
p=0,01). Minniháttar fylgikvillar (gáttatif, lungnabólga, þvagfærasýking
og yfirborðssýking í skurðsári) voru hins vegar svipaðir í báðum
hópum. Dánartíðni innan 30 daga var marktækt hærri hjá sjúklingum
með sykursýki, eða 5% borið saman við 2% í viðmiðunarhópi (p=0,01).
Sykursýki reyndist ekki sjálfstæður áhættuþættur fyrir dauða innan
30 daga þegar leiðrétt var fyrir öðrum áhættuþáttum með fjölþáttaað-
hvarfsgreiningu (OR=1,98, 95% ÖB: 0,72-4,95).
Ályktanir: Sjúklingar með sykursýki eru í aukinni áhættu á að fá bráðan
nýrnaskaða eftir kransæðahjáveituaðgerð en sykursýki virðist ekki vera
sjálfstæður forspárþáttur 30 daga dánartíðni.
E 95 Fæðuval íslenskra kvenna á meðgöngu og tengsl við
meðgöngusykursýki
Ellen Alma Tryggvadóttir1, Bryndís Eva Birgisdóttir1, Helga Medek2, Reynir Tómas
Geirsson2, Ingibjörg Gunnarsdóttir1
1Rannsóknastofu í næringarfræði, matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands og
Landspítala, 2kvennadeild Landspítala
eat2@hi.is
Inngangur: Góð næring á meðgöngu er mikilvæg fyrir heilbrigði móður
og barns. Meðgöngusykursýki getur haft slæmar afleiðingar fyrir
móður og barn. Markmið: 1) Kanna tengsl fæðumynsturs á meðgöngu
við hættu á meðgöngusykursýki. 2) Samanburður á fæðuvali þungaðra
kvenna út frá líkamsþyngdarstuðli fyrir þungun.
Efniviður og aðferðir: Íslenskum konum á aldrinum 18-40 ára var boðin
þátttaka við 20. vikna ómskoðun á fósturgreiningardeild. Þátttakendur
vigtuðu allan mat og drykk í fjóra daga á 19.-24. viku meðgöngu og
gengust undir sykurþolspróf á 23.-28. viku meðgöngu. Matardagbækur
fengust frá 98 konum í kjörþyngd, 46 í yfirþyngd og 39 of feitum konum
(n=183) sem voru nýttar í samanburð á fæðuvali. Af þessum konum
fóru 86, 44 og 38 í sykurþolspróf (n=168) og hjá þeim síðarnefndu voru
skoðuð tengsl fæðumynsturs við meðgöngusykursýki.
Niðurstöður: 1) Fæðumynstur sem samanstóð af fisk og sjávarréttum,
eggjum, grænmet, ávöxtum og berjum, jurtaolíum, hnetum og fræju,
pasta, morgunverðarkorni, kaffi og te ásamt neikvæðu samhengi við
gosdrykki og franskar kartöflur tengdist minni hættu á meðgöngu-
sykursýki (OR: 0,54 95% CI: 0,30, 0,98). Tengslin voru enn til staðar eftir
leiðréttingu ýmissa þátta (OR: 0,36 95% CI: 0,14, 0,94). 2) Neysla ávaxta,
grænmetis, fisks, trefja og Omega-3 virðist ekki vera nægileg meðal
þungaðra kvenna á Íslandi. Skortur á D-vítamíni, joði og járni gæti verið
til staðar hjá fjölda þeirra.
Ályktanir: Heilsusamlegt fæðumynstur gæti reynst verndandi gegn