Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Síða 65

Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Síða 65
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 8 2 LÆKNAblaðið 2013/99 65 Áhugaverðar upplýsingar fengust um áhrif meðhöndlunar og sýkingar með Asa og hlutverk AsaP1 sýkiþáttar á tjáningu flakkboðanna. V 24 Tengsl CRP við áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hjá unglingum: CRP-gildi er óháð líkamsþreki Ingibjörg Kjartansdóttir1, Ragnar Bjarnason1,2, Sigurbjörn Árni Arngrímsson3, Anna Sigríður Ólafsdóttir4 1Menntavísindasvið Háskóla Íslands, 2Barnaspítala Hringsins, Landspítala,3íþrótta- tómstunda- og þroskaþjálfaradeild Háskóla Íslands,4matvæla- og næringarfræðideild og kennaradeild Háskóla Íslands ink2@hi.is Inngangur: Bólguboðefnið C-hvarfgjarnt prótein (CRP) er sterkur for- spárþáttur hjarta- og æðasjúkdóma hjá fullorðnum en óljóst er hvaða áhrif hækkað CRP hefur á unglingsárum og tengsl þess við lífsstíl- stengda sjúkdóma í framtíðinni. CRP hefur verið nokkuð rannsakað hjá börnum og fullorðnum en lítið hjá unglingum. Markmið rannsóknarinn- ar er að skoða fylgni CRP við holdafar ásamt tengslum þess við insúlín- viðnám og efnaskiptavillu. Enn fremur að skoða áhrif líkamsþreks á tengsl CRP við þessa þætti. Efniviður og aðferðir: Þversniðsrannsókn með 16 ára nemendum í framhaldsskólum, 113 strákar og 110 stelpur. Mælt var holdafar, blóð- þrýstingur og líkamsþrek og blóðprufur teknar. Reiknað var skorgildi fyrir efnaskiptavillu útfrá mittismáli, meðalslagæðaþrýstingi (MAP), HOMA-IR, þríglýseríðum og HDL. Niðurstöður: Ekki var marktækur kynjamunur á gildum CRP hjá strák- um og stelpum (p=0.653). Fylgni CRP var sterkust við hlutfall líkamsfitu af öllum holdafarsmælingum. Þátttakendur í hæsta þriðjungi líkams- fitu höfðu marktækt verri efnaskiptagildi en þeir sem voru í lægsta þriðjungi. Í heild höfðu þrekmeiri einstaklingar betri gildi HOMA-IR og z-skor efnaskiptavillu. Stúlkur í hæsta þriðjungi líkamsfitu með gott þrek höfðu hins vegar ekki betri efnaskiptagildi en þær sem voru þrek- litlar. Fjölþátta tölfræðigreining sýndi að tengsl CRP við insúlínviðnám og z-skor efnaskiptavillu er miðlað gegnum líkamsfitu og CRP reyndist því ekki óháður forspárþáttur. Áhrif líkamsþreks á þetta samband voru hverfandi. Ályktanir: Sambandi CRP við HOMA-IR og z-skor efnaskiptavillu virðist alfarið miðlað gegnum líkamsfitu hjá heilbrigðum unglingum. Líkamsþrek hefur ekki áhrif á þetta samband. Stúlkur með mikla lík- amsfitu og gott þrek virðast ekki hafa betri efnaskiptagildi en þær sem hafa samsvarandi holdafar en lítið líkamsþrek. V 25 Erfðafræðilegur fjölbreytileiki Haemophilus influenzae meðal bera- og sjúkdómsvaldandi stofna á Íslandi 2012 Jana Birta Björnsdóttir, Helga Erlendsdóttir, Martha Á. Hjálmarsdóttir, Karl G. Kristinsson, Gunnsteinn Haraldsson Sýklafræðideild Landspítala og Lífvísindasetri, læknadeild Háskóla Íslands janabirta@gmail.com Inngangur: Bakterían Haemophilus influenzae (Hi) getur bæði sýklað og valdið sýkingum, einkum í varnarskertum einstaklingum. Hi hefur fjölsykruhjúp, þekktar hjúpgerðir eru; a,b,c,d,e og f. Hjúplausir Hi (NTHi) hafa engan fjölsykruhjúp og mjög fjölbreytilegt genamengi. Bólusetningar með PCV-10 gegn pneumókokkum hófust sem hluti af ungbarnabólusetningum á Íslandi árið 2011. Prótein D frá Hi er burð- arprótein í bóluefninu og er talið að það hvetji til ónæmissvars gegn Hi auk pneumókokkana. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hlutfall hjúpaðra stofna meðal Hi í stofnasafni sýklafræðideildar ásamt því að skoða erfðafræðilegan fjölbreytileika Hi. Efniviður og aðferðir: Hi stofnar úr sjúklingasýnum sendum á sýkla- fræðideild Landspítalans árið 2012 (n=511) og nefkokssýnum leik- skólabarna (n=286) teknum á höfuðborgarsvæðinu árið 2012 voru hjúp- greindir með PCR. Til stofngreiningar voru valdir 303 stofnar í PFGE (pulsed-field-gel-electrophoresis) og MLST (multilocus-sequence-typ- ing) var gert á 12 stofnum sem sýndu áhugaverðar niðurstöður í PFGE. Niðurstöður: Aðeins einn hjúpaður stofn, af hjúpgerð e, fannst meðal sjúklingasýnanna. Hjá leikskólabörnum fundust tveir stofnar af hjúp- gerð e og þrír af hjúpgerð f. Alls greindust 121 klónar með PFGE. Margir þeirra innihéldu bæði berastofna (frá leikskólabörnum) og sjúkdóms- valdandi stofna frá ýmsum sýnatökustöðum. Stofn af hjúpgerð f sýndi samskonar bandamunstur í PFGE og þrír NTHi stofnar og annar stofn af hjúpgerð f var í sama PFGE klón og tveir stofnar af hjúpgerð e. MLST á 12 stofnum gaf 10 raðgerðir, ein þeirra var ný. Ályktanir: Nánast allir Hi stofnarnir voru hjúplausir og með mjög breytilega PFGE klóna, enginn þeirra var ríkjandi. Niðurstöður rann- sóknarinnar skapa þekkingargrunn á erfðafræðilegum fjölbreytileika Hi áður en möguleg áhrif pneumókokkabólusetninganna á Hi koma fram. V 26 Dendritic cells matured in the presence of annotine direct T cells towards a Th2/Treg phenotype Ingibjörg Harðardóttir1, Brianna Blomqvist4, Sigrún Hauksdóttir4, Elín S. Ólafsdóttir5, Jóna Freysdóttir2,3,4 1Department of Biochemistry and Molecular Biology, Faculty of Medicine, Biomedical Center, University of Iceland, 2Department of Immunology, Faculty of Medicine, Biomedical Center, University of Iceland, 3Centre for Rheumatology Research, Landspítali University Hospital, 4Department of Immunology, Landspítali University Hospital, 5Faculty of Pharmaceutical Sciences, University of Iceland jonaf@landspitali.is Introduction: Annotine is a lycopodane-type alkaloid that does not inhibit acetylcholinesterase, as some other lycopodium alkaloids do. The aim of this study was to determine whether annotine affects immune responses by dendritic cells (DCs). Methods and data: Annotine was isolated from Icelandic Lycopodium annotinum ssp. alpestre. Human monocytes were differentiated into immature DCs (imDCs) by incubating them with GM-CSF and IL-4 for 7 days, matured with TNF-α and IL-1β and stimulated with LPS for 48 h in the presence or absence of annotine. Concentration of cytokines in supernatant were measured by ELISA and expression of surface mar- kers by flow cytometry. DCs matured and stimulated in the absence or presence of annotine were also co-cultured with allogeneic CD4+ T cells for 6 days and concentration of cytokines in supernatant determined by ELISA. Results: DCs matured in the presence of annotine secreted less IL-10, IL-12p40 and IL-23 than DCs matured in the absence of annotine. As an- notine reduced IL-10 secretion more than IL-12p40 secretion the ratio of IL-12p40/IL-10 was higher in medium from DCs cultured with annotine. Allogeneic CD4+ T cells co-cultured with DCs matured in the presence of annotine secreted more IL-10 and IL-13 than T cells co-cultured with DCs matured in the absence of annotine. Conclusions: Although annotine had a pro-inflammatory effect on cytokine secretion by DCs, DCs matured in the presence of annotine had a greater potential to direct the differentiation of T cells into a Th2/Treg pathway than DCs matured and stimulated in the absence of annotine.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.