Úrval - 01.02.1967, Blaðsíða 40
38
ingi og naut hverrar einustu sögu
af því tagi.
Tvær fjölskyldur í lítilli borg
einni í Oklohoma komu fram með
þessum vinnubrögðum, sem fulltrú-
ar 104 þúsund heimila í grennd-
inni. Ein kona, sem auðvitað var
einnig fulltrúi 52 þús. annarra
kvenna, sagðist opna fyrir sjónvarp-
ið á morgnana og hafa það opið all-
an daginn til að róa vöggubarn
sitt.
Nielsenstofnunin notar enn sama
lterfi, hefur að vísu fjölgað úr-
taksheimilunum lítið eitt þannig að
þau eru nú 1130, sem eiga að vera
fulltrúar 52,6 milljónir sjónvarps-
heimila, svo að ástandið hefur ekki
skánað að marki síðan áðurnefnd
rannsókn fór fram. Hlutfallið er
þannig nú 1 fyrir hverja 46.500 sjón-
varpsheimili, sem þýddi í hliðstæðri
könnun um mataræði fólks, að ef
einhverjum einum fyndist úldið
kjöt gott, en það fólk er til, þá væri
ályktað að úldið kjöt væri étið á
46.500 heimilum.
Um það leyti, sem menn voru
sem ákafast að velta vöngum yfir
haldieysi þessara skoðanakannana,
var ungur útvarpsvirki að snæðingi
með flugvirkja einum, forstjóra
fyrir Federal Aviation Agency, og
var hann viðskiptavinur firma þess,
sem David Nicholson vann fyrir.
Hvorugur þessara manna, hafði
neinn sérstakan áhuga á skoð-
anakönnunum sjónvarpsstöðvanna,
en annar þeirra, Jenks, var að tala
um einkennilega reynslu, sem hann
hafði orðið fyrir í starfi sínu.
Fyrir fjórum eða fimm árum
hafði stofnun sú, sem hann veitti
ÚRVAL
forstöðu, glímt við vandamál í sam-
bandi við galla á blindflugstækj -
um og við rannsókn virtist koma í
ljós að sjónvarpstæki hefðu áhrif
á blindflugstæki flugvallanna og
vélanna.
Jenkins hafði þá tekið sér flug-
vél og flogið yfir borgina Philadel-
phiu, kvöld eitt, þegar mikil orr-
usta var háð í sjónvarpinu, og tal-
ið var öruggt, að sem flest sjón-
varpstæki væru opin. Hann hafði
blindflugstækin í gangi og kom þá
í ljós að þau trufluðust ekki af
merkjum frá sjónvarpstækjunum,
en það var greinilegt að þau gátu
náð þeim, ef þau voru stillt á þá
tíðni, sem viðkomandi sjónvarps-
stöð sendi út á.
Það hrópaði enginn, Eureka! (ég
hefi fundið það), en þeir félagar,
gerðu sér strax ljóst, þar sem þeir
sátu að snæðingi og ræddu málið,
að hér myndi vera fólgnir marg-
víslegir möguleikar. Nicholson og
félagi hans einn í útvarpsvirkjun,
Mixsell, höfðu unnið að tæki, ekki
ólíku því, sem hér myndi um að
ræða fyrir útvarpsstöð eina og
Nicholson var viss um, að hægt væri
að búa til tæki, sem myndi ef flog-
ið væri yfir borgina, leiða í ljós
hversu mörg sjónvarpstæki væru
opin, hverju sinni.
Þessir þrír, Nicholson, Jenkins og
Mixsell fengu nú í lið með sér fleiri
menn og mynduðu félagið Televis-
ion Audit Corp og voru svo ráðnir í
þessu, að þeir sögðu allir upp hin-
um ágætu störfum, sem þeir höfðu
fyrir.
Þeir byrjuðu á því að fara af stað
í lítilli bifreið, og héldu upp í hlíð-