Úrval - 01.02.1967, Qupperneq 48
46
aðgerðir, geislaaðgerðir og áður
þekkt lyf.
Nú verður lítillega rakin sú þró-
un, sem liggur að baki þessa bólu-
efnis, sem menn binda vonir við
þrátt fyrir allt.
Einn er sá möguleiki, sem ásamt
fjölmörgum öðrum hefur verið á
baugi hjá vísindamönnum, sem fást
við krabbameinsrannsóknir, að
krabbamein sé veirusjúkdómur.
Þeir sérfræðingar, sem hafa trúað,
að veira sé sjúkdómsorsökin hafa
unnið ötullega að því að sanna þá
skoðun sína og margt komið í ljós
við rannsóknir þeirra. Einn þeirra
fréttamanna New York Times, sem
fæst við að rita vísindafréttir, sagði
nýlega:
— Ef þú vilt vita, hvað er nýjast
á baugi í krabbarannsóknum, þá
skaltu ekki leggja leið þína á þing
krabbameinssérfræðinga heldur í
rannsóknarstofur þeirra, sem fóst
við veirurannsóknir og lífefnafræði-
rannsóknir."
Þessir menn, sem álíta veiru valda
sjúkdómnum, telja að krabba-
veiran leynist í líkama mannsins,
svo árum skipti og sé jafnvel arf-
geng í því ástandi. Einstaklingur
sem hefur þessa veiru fólgna í sér
verður hennar ekki var árum sam-
an og getur verið eðlilega heilbrigð-
ur, þar til einn daginn, að þessi
sofandi lífveira vaknar af dvalan-
um og upphefur hinn banvæna vöxt
sinn. Einhverskonar vaki, eins og til
dæmis vindlingareykingar eða sót
í borgum, geti verið að verki, þegar
veiran hrekkur upp af dvalanum.
Einnig geti vakinn verið illkynjuð
veikindi af öðru tagi eða erting og
ÚRVAL
núningur eða taugaæsingur. Þegar
veiran hefur verið vakin af dval-
anum, byrjar hún eyðileggingar
starf sitt og hættir ekki fyrr en hún
hefur eyðilagt þann sem hýsir hana.
Alyktunin, sem þessir menn draga
af kenningu sinni er: Ef það reyn-
ist rétt að veiran orsaki krabba-
myndun, þá er sá möguleiki fyrir
hendi, að hægt sé að mynda and-
bóluefni við sjúkdómnum.
Þessi ályktun er byggð á þeirri
vísindalegu staðreynd, að í blóði
sjúklinga, sem haldnir eru þekktum
veirusjúkdómum myndast efni, sem
sjúkdómnum valda og gera sjúkl-
inginn ónæman fyrir sjúkdómnum.
Þetta hefur verið þekkt stað-
reynd alla tíð síðan enski læknir-
inn, Edward Jenner fann upp bólu-
efni gegn hlaupabólunni, árið 1796
og síðan hafa fundizt margskonar
bóluefni, sem bjargað hafa fjölda
mannslífa, og fengin eru úr dauðum
eða veikum líffærum af völdum
sjúkdómsins. Alkunn bóluefni af
þessu tagi eru bóluefni við háls-
bólgu, hundaæði, influensu, misl-
ingum og lömun.
Af hverju skyldi þá ekki vera
hægt að uppgötva bóluefni gegn
krabbameini, ef það er veirusjúk-
dómur.
Miklar og víðtækar rannsóknir
hafa átt sér stað, sem fyrr segir
til að sanna eða afsanna, að krabbi
sé veirusj úkdómur og er of langt að
rekja það hér.
Að endingu ber að endurtaka það
álit lækna, að enn sé of snemmt að
gleðjast yfir því að fundið sé bólu-
efni gegn krabbameini, en þrátt
fyrir það sé full ástæða til að fylgj-