Úrval - 01.02.1967, Síða 74
72
ÚRVAIi
unarinnar." Það kom þeim fulltrú-
unum á óvart, hve lítið varð um
andmæli. Margir foreldrar viku sér
að þeim og sögðust sjálfir gjarnan
hafa viljað veita börnum sínum
þessa fræðslu, en átt erfitt með að
koma orðum að því við þau.
Þegar kom fram á árið 1964 voru
margir unglingaskólar í Los Angel-
es svæðinu farnir að veita fræðslu
um samræðissjúkdóma. Og nú er svo
komið, að nálega allir slíkir skólar
þar veita hana á stuttum námskeið-
um. Hver skyldi árangurinn vera?
Hann er sá, að á árunum 1964 til
65 lækkaði smitunartalan um nærri
þriðjung meðal ungmenna í Los
Angeles, samtímis því sem hún fór
síhækkandi annarsstaðar. Og síðan
1963, að byrjað var á fræðslunni,
hefur smitun unglingana í Los Ang-
elesvsæðinu lækkað um 58 af
hundraði.
DÝRKEYPT AÐGERÐARLEYSI.
Annar mikilsverður árangur
fræðslunnar var sá, að unglingarn-
ar, sem sýktust, leituðu læknis
miklu fyrr en áður, og gat það oft
flýtt fyrir lækningum. Pilt-
ur nokkur 17 ára gamall
kom til læknis á öðrum degi eftir
að fyrstu einkenna varð vart, en
það var viku eftir að hann hafði
verið með „skvísu“, sem býsna lítið
taaumhald hafði á sér. Það kom í
ljós, eftir því sem Lugar sagði, að
stúlkan hafði verið með þremur
þess á milli. Hefði pilturinn látið
þetta dragast eins lengi og meðal-
talið árið 1962 var, þá hefði þessi
sama stúlka líklega náð að smita
fjóra til viðbótar.
Skyldu nú þessar breytingar hafa
getað verið tilviljunarkenndar eða
stafað af öðrum orsökum en fræðsl-
unni? Til þess að komast eftir því,
var farið yfir skýrslur af öllu Los
Angeles landssvæðinu og borið sam-
an við niðurstöður þeirra tveggja
borga, sem neitað höfðu upp-
fræðslutillögunum. í Pasadena, en
þar höfðu andstæðingar tillagnanna
ýmist haldið því fram að ungling-
unum mundi verða of mikið um
þetta eða það mundi ala á lausung,
fimmfaldaðist smitunartalan frá
1964 til 1965. í Long Beach sjöfald-
aðist hún.
Sumir sem eru á móti fræðsl-
unni, bera því við, að unglingarnir
muni hvorki kæra sig um hana né
muna það, sem þeim er kennt. Stað-
reyndirnar tala öðru máli. Heil-
brigðismálaráðunautar komu ný-
lega upp „fræðsluborði“ um þessi
mál á sýningu þar sem mikill fjöldi
unglinga kom. Á einni viku þyrptust
300.000 að fræðsluborðinu. Þúsundir
þeirra fengu spurningalista um sam-
ræðissj úkdóma.
Þeir sem höfðu notið fræðslunn-
ar sýndu, að þeir höfðu ekki týnt
henni niður, því að 80—90 af hundr-
aði svöruðu aðalspurningunum rétt.
En af þeim, sem ekki höfðu notið
skólafræðslu, vissi aðeins fimmti
hver, að blóðrannsókn gæti skorið
úr um sárasóttarsýkingu, ekki full-
ur þriðjungur vissi, að eftir nokk-
urn tíma mundu hin ytri einkenni
hverfa, en sjúklingurinn vera
hættulega veikur eftir sem áður, og
meir en helmingur hélt að algengt
væri, að menn smituðust á almenn-
ingssalernum og af handklæðum.