Úrval - 01.02.1967, Qupperneq 105
HLAUPTU BURT, LITLA STÚLKA
103
hafa líka sínar sérstöku þarfir og
vandamál. Hvernig geta foreldrar
fórnað allri fjölskyldunni vegna
eins barns, sem illa er á vegi statt?“
„Sé eitthvert barn innan fjöl-
skyldunnar illa á vegi statt, sé það
sært og í nauðum statt“, svarið
hr. Doman, “er öll fjölskyldan þeg-
ar í nauðum stödd. Reynist unnt að
lækna hið nauðstadda barn og koma
því til heilsu, verður öll fjölskyld-
an jafnframt heiibrigðari á allan
hátt. Getið þið gefið hinum börnun-
um ykkar stærri gjöf en þá að veita
þeim tækifæri til að skapa bróður
eða systur skilyrði til þess að lifa
hamingjusömu lífi?“
Sama hugsunin bjó í hug okkar
þriggja, er við yfirgáfum salinn.
Debbie yrði aðalstjarna Doman-
stofnunarinnar, ef velgengni okkar
byggist á því, að við legðum fram
alla orku okkar og óskipta krafta
í þessari tilraun.
Geysilegt átak .... og lojorð.
Þegar við fórum í þriðju heim-
sóknina til stofnunarinnar, urðum
við vör við, að andrúmsloftið var
skyndilega orðið allt annað. í tveim
fyrstu heimsóknunum höfðu allir
foreldrarnir verið svo algerlega
bundnir hugsuninni um, hverja
batamöguleika þeirra eigin börn
hefðu, að þeir gerðu sér alls enga
grein fyrir vandamálum allra hinna
foreldranna. Þeir skynjuðu þau
varla. Nú vorum við öll á sama
báti og stefndum að nýju takmarki.
Við óskuðum hvert öðru alls hins
bezta í því efni af heilum hug.
Debbie hélt sér dauðahaldi í háls
mér með litlum fingrum, sem voru
krepptir af taugaæsingi, þegar við
gengum inn í viðtalsherbergið.
Starfsstúlka ein kastaði á okkur
kveðju og rétti okkur spjald, sem
á átti að færast allt, er snerti þjálf-
un og þroskaaukningu Debbie.
„Þetta verður nokkurskonar
„markatafla“ Debbie litlu, meðan á
þjálfuninni stendur", útskýrði hún.
„Þarna getur að líta nokkurs konar
vog, þar sem annars vegar er um
að ræða raunverulegan aldur barns-
ins, en hins vegar er borinn saman
við hann sá aldur, sem kalla mætti
þroskaaldur taugakerfis hennar.
Miðað við hinn raunverulega aldur
Debbie, sem er 33 mánuðir, er hann
aðeins 24 mánuðir. Mesti vanþroski
hennar er á hreyfisviðinu, en hvað
snerti þann þátt þroskaaldurs tauga-
kerfis hennar, er hún aðeins 8 vikna.
Markmið okkar með þessari þjálf-
un er að samhæfa smám saman
þroskaaldur taugakerfisins raun-
verulegum aldri hennar á öllum
sviðum heilastarfseminnar. Nú eig-
ið þið að fara með Debbie til ým-
issa þjálfunarsérfræðinga, og þeir
munu hver um sig skýra nánar fyrir
ykkur, hvað gera skal til þess að
beina hinum ýmsu þáttum þroska
hennar að þessu marki.“
Debbie hafði „fengið góða eink-
unn“ á tveim sviðum heilastarfsem-
innar, þ.e. hvað snerti mál og snerti-
skyn. Nú átti ég fyrst og fremst
að lesa fyrir hana og tala við hana
til þess að auka málgetu hennar
og málskilning og veita henni jafn-
framt næg tækifæri til þess að
tala við aðra. Til þess að styrkja
snertiskyn hennar og getu á því
sviði, átti ég að setja nokkra smá-