Úrval - 01.03.1968, Qupperneq 39
. GRÓÐURHÚSARÆKT í HOLLANDl
37
að því er forstöðumaðurinn sagði
mér. Flæðiljós, sem eru í löngum
röðum meðfram gróðurhúsagöflun-
um (úr gleri), kveikja á sér sjálf-
krafa eftir því hve mikið eða lítið
Ijós plöturnar þurfa í hvert skipti.
Með þessu móti má flýta vexjti
agúrka og tómata — með því að
lengja fyrir þeim daginn og stytta
nóttina.
Hinsvegar þarfnast sumar jurtirn-
ar dimmu nætur til þess að geta
blómgazt og telji blómræktarmaður-
inn sér hagkvæmt að seinka blómg-
uninni, með tilliti til sölunnar, læt-
ur hann loga Ijós yfir jurtunum um
nætur, svo að blómhnapparnir opn-
ist ekki. Með þessu móti hefur tek-
izt að láta prestakraga (chrysant-
hemum) blómgast allt árið, í stað
þess að gera það einungis að hausti.
Tölur tala sínu máli um árangur-
inn af þessari nýbreytni. Gróður-
húsaeigandi fær þrefalda uppskeru
af tómötum af hverjum hektara und-
ir gleri móts við það sem hann
fengi af ræktun undir beru lofti,
og ekki þarf hann að óttast hallæri
af völdum veðráttunnar, sem bænd-
ur annars eru svo mjög háðir, og
uppskeran er viss á hverri árstíð
jafnt sem gæði ávaxtanna.
En svo hefur það nokkuð að segja
hvemig Holland er í sveit komið
landfræðilega. í allt að því 400 km
fjarlægð í allar áttir eru þéttbýl
lönd; Vestur-Þýzkaland, Belgía,
Norður-Frakkland, og Austur Eng-
land. Alllangt er liðið síðan hol-
lenzkir blóma-og ávaxtaræktendur
fengu augastað á þessu og hafa síð-
an unnið að því ósleitilega að afla
Prestajíflar (chrysantliemumi í gróð-
urhúsi í tilraunastöðinni í Aalsmeer.
sér markaða á þessu svæði — og
tekizt það.
Raunar eru ávextir og grænmeti,
sem ræktað er í gróðurhúsum, dýr-
ara en hitt, sem ræktað er undir
beru lofti, en reynist svo miklu
betra, að það er að jafnaði seljan-
legra. A markaðstorgi í Múnchen sá
ég fallegt salat í plastpokum, og við
hliðina á því samskonar grænmeti
að flutt um miklu skemmri veg, en
samt svo visnað og ófýsilegt til
kaups, að á því og hinu var enginn
samanburður. Hans Ostler, sem er
gamall innflytjandi gróðurhúsaaf-
urða, benti mér á hollenzka tómata,
ræktaða í gróðurhúsum: „Þetta var
tínt í fyrradag,“ sagði hann, ,,og
seinni part dagsins verður það kom-
ið í grænmetisbúðir. Grænmeti frá
öðrum löndum en Hollandi kemur
ekki hingað fyrr en það er nokkurra
daga gamalt.
Kaupendurnir höfðu sömu sögu
að segja. Ég spurði konu, sem ég
hitti við markaðstorg, hvernig henni