Úrval - 01.03.1968, Page 97

Úrval - 01.03.1968, Page 97
FISKIMANNAÞJÓÐIN 95 inn, og rakst þá á stein, sem á var letrað ártalið 1650. Kiirkjugarð’ur þessi var í litlu þorpi, sem hét Ship Cove (í grennd við Conception Bay). Einnig stóð letrað á steininn nafnið Dewes. Mér þótti svo gaman að þessu, að mér fannst ég þurfa að segja frá því, en sá þá engan mann í nándinni, nema gamlan gráskegg, sem var að slá með orfi og ljá grasið milli leiðanna. Ég kallaði til hans og benti honum á steininn. „Sko til,“ sagði ég allur uppveðr- aður. „Fyrir þrjú hundruð árum hefur dáið hér maður að nafni Dew- es. Ég vildi að ég vissi hvaðan hann kom hingað og hver hann var.“ Gamli maðurinn leit til mín dá- lítið tortryggnislega, eins og hann héldi að ég væri að henda gaman að honum, en svo þóttist hann sjá það í hendi sér að ég væri aðkom- inn þangað fyrir stuttu. „Vertu ekki neitt hissa á þessu, barnið mitt. Þetta er steinnin á gröf Johnny Dewes, já, það er hann. Hann fæddist í Ship Cove og þar lauk lífi hans. Átti heima hérna, og hvergi nema hér, og faðir hans einnig. Sama er að segja um mig. Ég heiti Jim Dewes, ef þú kærir þig nokkuð um að vita það.“ Ég man það líka þegar Howard Morry á Ferryland lét mig fara með sér upp á hól til að sýna mér þaðan út yfir Atlantshafið, þennan feikna- víða, gráa flöt, og segja mér, að snemma á 18. öld hafi langa-langa- langa-lang-amma sín átt hér heima og að hún hafi verið vön að ganga upp á þennan hól til þess að gæta að því hvort hún sæi skip eigin- manns síns, sem verið hafði í sigl- ingum til Azoreyja og Portúgals, á leið lil lands. Howard er fiskimaður, og er nú um áttrætt, en sýnist ekki eldri en fertugur, og hann kann alla sögu Ferrylands frá upphafi, eða um 1500, en hinir fyrstu fiskimenn fóru þangað til sjósóknar um sumarmán- uðina. Sagan er honum svo hug- stæð og hugþekk vegna þess að hann á sjálfur hlutdeild í henni, og sama máli gegnir um landa hans sem eru á svipuðum aldri. Norrænir merrn frá Grænlandli fundu landið fyrst árið 986, og gerðu tilraun til að nema það, en sú byggð varð skammæ. Um miðja fimmtándu öld fór þess fyrst verulega að gæta, að fiskgengdin væri hagnýtt, fóru menn þangað að sumarlagi og höfðu þar dvöl við veiðar, en sneru heim að hausti. Víða eru þarna góðar hafnir. Það var bannað með lögum að nema land í Nýfundnalandi fram til ársins 1700. Auðugir fiskikaup- menn enskir, gengu ríkt eftir að þeim lögum væri hlýtt, svo að ekki risi upp sjálfstæð fiskimannastétt í þessu „nýja landi“. En árið 1510 var svo komið, að strokumenn af skip- um höfðu svo margir borizt þar á land, að úr því varð dálítil manna- byggð. Hörð var lífsbarátta þeirra, en samt lifðu þeir af. Þeir höfðu 10.000 kílómetra strandlengju að dyljast í, og þar byggðu þeir sér litla kofa úr torfi og grjóti, sem líktust gró- inni þúst til að sjá, og duldust aug- um þeirra sem framhjá sigldu. Að- alfæða þeirra var fiskur. Um miðja setándu öld mátti heita að mest öll
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.